Læknaneminn - 01.04.2004, Qupperneq 66
í óþekktum tilvikum 24,5 ár (0-64). Einstaklingar yngri en
16 ára voru 84, stúlkur 59, drengir 19 og kyn óþekkt hjá 6.
Jákvæð sýni voru flestfrá Reykjavík, 4438 (92,1 %) aðallegafrá
Heilsuverndarstöð Reykjavíkur og Húð- og kynsjúkdómadeild
Landspítala, alls 3221 (72,6%). Frá Reykjanesi komu
120 (2,4%) og Vesturlandi 60 (1,2 %). Penisillín ónæmar
lekandabakteríur greindust hjá 36 einstaklingum.
Umræður: Nýgengi lekanda á íslandi var um 25/105 íbúa
á ári sjöunda áratuginn, fór síðan hratt vaxandi á áttunda
áratugnum og náði hámarki 1979. Þá var nýgengið um
178/105 íbúa á ári, sem er um 90 fallt nýgengi lekanda
síðustu fimm ár. Próun lekanda á Islandi hefur að mestu fylgt
hinum Vesturlöndunum undanfarna áratugi. Penisillín ónæmi
greindist fyrst hér um svipað leiti og í Evrópu.
Lykilorð: Faraldsfræði, lekandi, Island
Þróun á meðferð góðkynja stækkunar hvekks á íslandi -
lyfjameðferð aðgerðir og kostnaður
Jens Kristján Guðmundsson
Leiðbeinendur: Sigmar Jack, Helgi J. Isaksson, Guðmundur Geirsson.
Inngangur: Góðkynja stækkun hvekks (benign prostatic
hyperplasia, BPH) er vaxandi, aldurstengt vandamál og
hefur oft talsverð áhrif á lífsgæði. Síðasta áratug hefur
brottnámsaðgerðum á hvekk um þvagrás (transurethral
resection of the prostate, TURP) fækkað mikið. Lyfjameðferð
hefur hins vegar aukist verulega.
Rannsóknin er framhald og viðbót við fyrri rannsókn. Eins og
áður var sjónum beint að breytingum á meðferð BPH á íslandi
m.t.t. meðferðarforms og kostnaðar.
Efniviður og aðferðir: Rannsóknin var afturskyggn og tók
til fjölda TURP aðgerða sem gerðar voru vegna BPH árin
2001-2002. Upplýsingar um fjölda sjúklinga fengust frá
sjúkrahúsunum LSH, FSA, SHAog Rannsóknarstofu Háskólans
í Meinafræði. Staðreyndir um lyfjanotkun voru fengnar frá
Lyfjastofnun. Útreiknaður kostnaður fékkst samkvæmt DRG
(diagnosis related group) flokkun. Farið var yfir sjúkraskrár
allra sem fóru í TURP á LSH á fyrrnefndu tímabili vegna
BPH. Skráðar voru ábendingar, fyrri lyfjameðferð, fylgikvillar,
legudagar, magn vefs, fjöldi enduraðgerða o.fl.
Niðurstöður: Á tímabilinu voru árlega gerðar um 190
skurðaðgerðir vegna BPH og hefur þeim farið stöðugt
fækkandi á síðastliðnum áratug. Langflestar voru hefðbundnar
TURP aðgerðir (91%). Um tvö þúsund ársskammtar lyfja
vegna BPH hafa verið skrifaðir út á ári að andvirði 100
NuvaRing, leggangahringur, G03AA. Samsetning: Hver skeiðarhringur inni-
heldur 11,7 mg af etónógestreli og og 2,7 mg af etinýlestradíóli. Ábending:
Getnaðarvörn. Öryggi og verkun hefur verið staðfest hjá konum á aldrinum
18 til 40 ára. Skammtar og lyfjagjöf: Konan getur sjálf komið hringnum fyrir
í leggöngum. Þegar hringnum hefur verið komið fyrir skal hann hafður í
leggöngum samfellt í 3 vikur. NuvaRing á að fjarlægja eftir 3 vikna notkun á
sama vikudegi og ísetning hringsins fór fram. Eftir vikulangt hlé er nýr hringur
settur í leggöng. I 3 vikur losna daglega að meðaltali 0,120 mg af etónóge-
streli og 0,015 mg af etinýlestradíóli úr hringnum. Frábendingar:
Segamyndun eða saga um segamyndun í bláæðum með eða án lungna-
blóðreks. Segamyndun eða saga um segamyndun í slagæðum eða fyrirboði
um segamyndun. Þekkt tilhneiging til segamyndunar í bláæðum eða
slagæðum með eða án erfðaþátta. Sykursýki með fylgikvillum i æðum.
Alvarlegir áhættuþættir, einn eða fleiri, fyrir segamyndun í bláæðum eða
slagæðum. Alvarlegur lifrarsjúkdómur eða saga um slikt hafi niðurstöður úr
lifrarprófum ekki orðið eðlilegar aftur. Lifraræxli (góðkynja eða illkynja) eða
saga um slíkt. Illkynja hormónaháð æxli í kynfærum eða brjóstum eða grunur
um slíkt. Blæðingarfrá leggöngum af óþekktum orsökum. Ofnæmi fyrir virku
efnunum eða einhverju hjálparefna NuvaRing. Varnaðarorð og varúðar-
reglur: Ef eitthvert eftirtalins ástands/áhættuþátta er fyrir hendi skal meta
kosti notkunar NuvaRing gegn hugsanlegri áhættu í hverju tilviki fyrir sig.
Æðasjúkdómar: Notkun samsettra getnaðarvarnataflna hefur verið tengd
aukinni hættu á segamyndun í bláæðum (segamyndun ( djúpum bláæðum
og lungnablóðreki) og segamyndun I slagæðum og tengdum fylgikvillum.
Aðrir sjúkdómar sem hafa verið tengdir æðasjúkdómum eru sykursýki, rauðir
úlfar, blóðlýsuþvageitrunarheilkenni (hemolytic uraemic syndrome),
langvinnur bólgusjúkdómur í þörmum (t.d. Crohns sjúkdómur eða sáraristil-
bólga). Aukin tíðni mígrenikasta svo og ef þau verða verri getur verið fyrir-
boði heilablóðfalls. Æxli: Aukinni hætta er á krabbameini í leghálsi hjá konum
við langtímanotkun samsettra getnaðarvarnataflna og örlítið aukin hætta á
greiningu brjóstakrabbameins. Einstaka sinnum hefur verið greint frá
góðkynja lifraræxlum og enn sjaldnar illkynja lifraræxlum hjá þeim sem nota
samsettar getnaðarvarnatöflur. Aðrir sjúkdómar: Konur með hátt þríglýserið
í blóði eða fjölskyldusögu um slikt geta verið í aukinni hættu á að fá brisbólgu
þegar þær nota hormónagetnaðarvörn. Þótt greint hafa verið frá lítils háttar
blóðþrýstingshækkun hjá mörgum konum, sem nota hormónagetnaðarvörn,
hefur ekki verið sýnt fram á samhengi milli notkunar hormónagetnaðarvarnar
og háþrýstings sem hefur kliníska þýðingu. Bráðar eða langvinnar truflanir á
lifrarstarfsemi geta gert það að verkum að nauðsynlegt reyndist að hætta
notkun NuvaRing þar til lifrargildin eru komin í eðlilegt horf. Fylgjast þarf vel
með sykursýkissjúklingum meðan á notkun NuvaRing stendur, einkum á
fyrstu mánuðum notkunar. Versnun á Crohns sjúkdómi og sáraristilbólgu
hefur sést í tengslum við notkun hormónagetnaðarvarna. Þungunarfrekna
(chloasma gravidarum) hefur stöku sinnum orðið vart, einkum hjá konum
með sögu um slíkt á meðgöngu. Legsig, blöðrusig og/eða endaþarmssig,
alvarleg eða langvinn hægðategða geta gert notkun NuvaRing erfiða eða
ómögulega. Milliverkanir: Lyf sem hvetja frymisagnarensím (microsomal
enzymes) geta leitt til aukinnar úthreinsunar kynhormóna (t.d. fenýtóín,
fenóbarbital, prímidón, karbamazepín, rífampictn og hugsanlega einnig
oxkarbazepín, tópíramat, felbamat, ritónavír, gríseófúlvín og vörur sem
innihalda Jóhannesarjurt). Dregið getur úr hringrás östrógens um lifur og
þarma þegar ákveðin sýklalyf eru gefin samtímis og getur það leitt til
lækkunar á þéttni etinýlestradíóls (t.d. penicillín, tetracýklín). Milliverkanir
hormónagetnaðarvarnalyfja og annarra lyfja geta leitttil milliblæðinga og/eða
að getnaðarvörn bregðist. Meðganga og brjóstagjöf: NuvaRing á ekki að nota
á meðgöngu. Aukaverkanir: Algengar: Þrymlabólur, höfuðverkur og mígreni,
geðlægð, tilfinningalegt ójafnvægi, minnkuð kynhvöt, kviðverkir, ógleði,
þyngdaraukning, kviðverkir (tengdir kynfærum), verkur í brjóstum, auka-
verkanir tengdar lyfjaforminu, tíðaþrautir, útferð, óþægindi í leggöngum og
leggangaþroti. Kynfæri karla: Aukaverkanir tengdar lyfjaforminu (t.d.
óþægindi við samfarir). Ofskömmtun: Ekki hefur verið greint frá alvarlegum
skaðlegum verkunum við ofskömmtun hormónagetnaðarvarna. Einkenni
sem geta komið fram í þeim tilvikum eru ógleði, uppköst og smávægilegar
blæðingar frá leggöngum hjá ungum stúlkum. Útlit: NuvaRing er sveigjan-
legur, gegnsær hringur, 54 mm í þvermál og með 4 mm þversniði.
Pakkningar og verð: 1. nóv. 2002, 1 hringur: 1.916 kr, 3 hringir: 4.644 kr.
Afgreiðslutilhögun: Lyfið er lyfseðilsskylt. Greiðslufyrirkomulag: Ekki greitt
af TR. Sérlyfjaskrártextinn er verulega styttur. Texta í fullri lengd er hægt að
nálgast á heimasíðu Lyfjastofnunar eða hjá PharmaNor hf, Hörgatúni 2, 212
Garðabæ. Umboð á íslandi: PharmaNor hf • Hörgatúni 2 • 212 Garðabæ •
Sími 535 7000 • Fax: 535 7188 • Tölvupóstfang: oraanon@nharmanor.is
Heimildir:
1. Timmer CJ, Mulders TMT. Pharmacokinetics of Etonogestrel and
Ethinylestradiol Released from a Combined Contraceptive Vaginal
Ring. Clin. Pharmacokinet 2000;39:233-242.
2. Roumen FJME, Apter D, Mulders TMT, Dieben TOM. Efficacy, tole-
rability and acceptability of a novel contraceptive vaginal ring rele-
asing etonogestrel and ethinyl estradiol. Hum. Reprod.
2001;16:469-475.