Læknaneminn - 01.04.2004, Qupperneq 79
yY*
Áhrif staðsetningar hjartadreps á afdrif sjúklinga og tengsl við
meðferð
Bjami Geir Viðarssonl, Uggi Agnarssonl, 2, Þórður Harðarson2,Thor
Aspelund2, Vilmundur Guðnason1,2
Læknadeild Háskóla Islands 1 og Hjartavernd2
Inngangur: Miklar upplýsingar eru til um forspárgildi
ýmissa EKG breytinga eins og þróun Q bylgna, ST hækkana
og víðsnúning T bylgju. Staðsetning þessara breytinga í
hjartanu getur verið á þrjá vegu: lateral veggur (l,aVL,V6,),
inferior veggur (II,III ,aVF) og anterior veggur (V1-V5).
Minna er vitað um áhrif staðsetningar mesta skaða og verður
reynt að varpa Ijósi á það í þessari rannsókn.
Efni og aðferðir: Rannsóknargögnin voru sótt í MONICA
skráningu Hjartaverndar. Skráningin nær aftur tíl ársins
1981. Upplýsingar um aldur, kyn, 28 daga lifun, umönnun,
EKG breytingar, greiningar flokk, fyrri kransæðastíflu tilfelli
einstaklings, segaleysandi meðferð og ensímgildi voru sótt í
MONICA skránínguna fyrir þessa rannsókn. Gögnin voru færð
í Excel og tölfræðiniðurstöður fengnar með MINITAB
Niðurstöóur: Þegar bornir voru saman einstaklingar sem
fengu umönnun innan sjúkrahúsa og EKG greininguna
greínileg (e.definite) eða möguleg (e.possible) kransæðastífla,
alls 1995 tilfelli, þá er niðustaðan sú að dánarhlutfallið er
hæst við framveggsskaða 10,9%, lateralskaði 9,6% og
inferiorskaði 8,7%. P gildi er 0,311, ekki er marktækur munur
milli staðsetninga. Ef gögnunum er skipt upp í þrjú þriggja ára
tímabil þá fæst marktækur munur milli staðsetninga á síðasta
tímabilinu, 1998-2000. Dánarhlutfall framveggsskaði 10,1%,
inferiorskaði 5% og lateralskaðí 2,7%. P gildi 0,026.
Einstaklingar sem fá segaleysandi meðferð koma marktækt
betur út en aðrir, dánarhlutfall 3,6% gegn 11,7%. P gildi
<0,001.
Umræður: Átímabilinu 1998-2000 hefur skemmd íframvegg
hjartavöðva marktækt hærra dánarhlutfall. Einnig lækkar
dánarhlutfall marktækt um 8,1% við segaleysandi meðferð.
Lykilorð: Kransæðastífla, EKG, MONICA, Staðsetning
kransæðastíflu.
Mat á lífsgædum sjúklinga eftir gerviliðaðgerð á hné
Helgi Karl Engilbertssonl, Örn Ólafsson2, Halldór Jónsson Jr.1,2
1) Læknadeild Háskóla Islands, 2) Landspítali-Háskólasjúkrahús
79
L