Fréttabréf Samtaka lungnasjúklinga - dec. 2023, Side 13

Fréttabréf Samtaka lungnasjúklinga - dec. 2023, Side 13
13 Eignaðist góðar vinkonur Kolbrún tekur það skýrt fram hvað dvölin hafi verið ánægjuleg, ekki síst vegna þess að þarna kynntist hún konum sem urðu strax vinkonur hennar og hefur sú vinátta haldist síðan. „Ég sagði við þær að ég hefði eiginlega verið að upplifa hvernig það væri að fara á heimavistarskóla. Ég gisti ásamt fimm konum saman í húsi en vinkonurnar voru ekki þar heldur komu á morgnana og fóru heim á kvöldin enda búsettar fyrir sunnan. Endurhæfingin fólst m.a. í alls konar líkamsrækt og æfingum en þær gerðu grín að mér með því að segja að ég væri alltaf með vottorð í leikfimi út af öllum pestunum sem ég fékk. Ég sagði þeim hins vegar að ég hefði ákveðið að hætta á toppnum í íþróttum þegar ég vann gullverðlaun í víðavangshlaupi árið 1971 í Sandgerði,“ segir Kolbrún hlæjandi og á greinilega ekki í neinum vandræðum með að svara fyrir sig. „Það er svo dýrmætt að eignast svona vini og fólk sem lætur sig varða um mann og sem maður lætur sig varða um líka,“ segir hún með hlýju brosi. Skrifaði forstjóranum Þegar Kolbrún kom heim á miðju sumri í fyrra með þá greiningu að hún væri með lungnabilun á lokastigi segist hún hafa verið mjög óánægð með afgreiðsluna sem hún hafði fengið fyrir vestan. „Ég skrifaði fráfarandi forstjóra Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða og lét hann vita af þessari óánægju. Ég nefndi að í það minnsta hefði mátt taka af mér mynd. Þá hefði þessi þétting í lunganu sést. Í öðru lagi finnst mér alveg galið að í öll þessi ár sem ég hef komið til læknisins með mikla öndunarerfiðleika hafi ég ekki einu sinni verið sett í blásturspróf. Það kostar nú ekki mikið og hefði ekki sett stofnunina á hliðina,“ segir hún með áhersluþunga. Og fékk svar Forstjórinn svaraði og sagði að farið hefði verið yfir gögnin hennar en að þeir sæju ekkert óeðlilegt við afgreiðsluna. Hann nefndi þó að eftir á að hyggja hefði mátt taka lungnamynd. „Ég varð reyndar fyrir svolitlum vonbrigðum þegar ég las svarið,“ segir Kolbrún, greinilega orðin ýmsu vön allan þennan tíma. „En ég hefði aldrei nennt að vera með einhver leiðindi, afla mér óvinsælda, eða óvina. Hins vegar hefði mér þótt mjög vænt um ef einhver hefði beðið mig afsökunar og sagt að þeir hefðu getað gert betur og að þeim þætti þetta leiðinlegt.“ Maður að meiru Það gerði enginn nema hjartalæknirinn sem hún hafði farið til vegna einkennanna. „Hann er maður að meiru,“ segir hún með ánægjubrosi. „Mér þótti rosalega vænt um það og hann óx heilmikið í áliti og hafði ég nú ágætis álit á honum fyrir. Ég fór til hans og spurði hvað hefði klikkað í sjúkdómsgreiningunni. Þegar hann var búinn að heyra það sem ég hafði fram að færa sagði hann að hann hefði átt að skoða mig betur og bað mig innilegrar afsökunar.“ Hún segir að hún hafi ekki þurft annað en að horfa á hann til að sjá að hann meinti hvert orð af því sem hann sagði og það hafi verið sér mjög dýrmætt! „Í janúar síðastliðinn þegar ég var komin með súrefnið eftir dvölina á Reykjalundi var ég orðin eins og veiðimaður,“ segir Kolbrún óræð á svipinn. „Ég elti uppi þá sem voru búnir að þjónusta mig. Ég er reyndar ekki búin að ná öllum,“ segir hún og skellihlær. Hún bætir við að ef þeir lesi Lungnablaðið megi þeir hafa í huga þessi orð hennar: „Ef það kemur til þín miðaldra kona, skaltu taka mark á því sem hún segir og skoðaðu hana. Ekki afgreiða hana sem móðursjúka, með stoðverki, gróðurofnæmi, eða kulnun!“ Kolbrún segist ekki hafa verið að hafa samband við þessa lækna í þeim tilgangi að koma af stað einhverjum málaferlum. „Ég var bara að benda á að hugsanlega hefðu þeir, líkt og ég, gert mistök. Ég hef fulla trú á að hefði verið gripið fyrr inn í þá væri ég ekki á þeim stað sem ég er á núna. Að sjálfsögðu eru það fyrst og fremst mín mistök að hafa byrjað að reykja, þar sem sumir vilja meina að þetta sé reykingum að kenna. Aðrir telja að fleiri þættir geti átt hlut að máli, bæði erfða- og atvinnutengdir. Þegar ég var unglingur vann ég t.d. þar sem ammoníak, klór og alls kyns hreinsiefni voru mikið notuð. Svo var COVID heldur ekki til að laga hlutina. Það er bara auðvelt að skella allri skuldinni á reykingar, ekki svo að skilja að ég sé að skauta fram hjá þeim. Auðvitað ber ég fyrst og síðast ábyrgð á því að hafa reykt en það eru átján ár síðan ég hætti.“ Vill ekki að aðrir lendi í hennar sporum Kolbrún segist ekki standa í þessu stappi til að hefna sín, eða af því að hún haldi að hún fái heilsuna aftur. „Ég vil bara ekki að einhver annar lendi í þessum sporum mínum, því að þetta er ekkert grín. Þótt maður velji sér ekki sjúkdóma þá getur maður valið sér baráttuefni.“ Hún hefur sett sér það skýra markmið að leggja sitt af mörkum til að forða öðrum frá vangreiningu á borð við þá sem hún hefur reynt. „Það er ekkert grín að vera allaf með einhverja þriggja kílóa tösku meðferðis. Það er ekkert grín að þurfa alltaf að vera með súrefnisvél heima hjá sér og vera í henni minnst 16 tíma með þennan hávaða sem því fylgir. Þetta er hljóðspillir. Ef ég þarf að ferðast eitthvað þarf ég að rogast með þessa tösku og vél hvert sem ég fer. Ég fer ekkert óundirbúin. Ég þarf að passa að vélin sé hlaðin og allt sé í lagi og ég viti nokkurn vegin í hvernig aðstæður ég er að fara. Vélin er samt sem áður mín lífsgjöf!“ Margvíslegar áskoranir Aðstæðurnar breytast líka hratt þegar lungnasjúklingar eru orðnir súrefnisháðir og þá er ekki lengur hægt að gera hvað sem er. „Bæði ertu ekki með fullan lungnastyrk en þú ert líka að fara á staði þar sem þú þarft beinlinis að passa þig. Þú mátt ekki við neinu. Bara til gamans þá var ég á Þingi Starfsgreinasambandsins fyrir skömmu með Verkalýðsfélagi Vestfirðinga og þurfti að skipuleggja mig rækilega. Um kvöldið var svo þingveisla. Það var svolítil áskorun af því að þar voru kerti og það er nokkuð sem fólk með súrefni meðferðis getur ekki gengið óheft um! Þarna voru kerti á miðju hringborði og formaðurinn bauðst til að færa þau lengra. Ég sagði að það væri óþarfi þar sem það væri svo

x

Fréttabréf Samtaka lungnasjúklinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Samtaka lungnasjúklinga
https://timarit.is/publication/1564

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.