Fréttir - Eyjafréttir - 05.07.2023, Blaðsíða 33
5. júlí 2023 | | 33
Kassar, öskjur, ferskfiskkassar, pokar, milliarkir
ásamt annarri rekstrarvöru.
Primex ehf. er íslenskt líftækni-
fyrirtæki á Siglufirði og nú
dótturfélag Ísfélagsins. Það hóf
framleiðslu árið 1999 með það að
markmiði að nýta þá rækjuskel
sem til féll hjá rækjuverksmiðjum
landsins og áður hafði verið hent
í sjóinn.
Kítósan eru græðandi lífvirkar
trefjar í vörum Primex sem unnar
eru úr fjölsykrunni kítín sem má
finna í stoðgrind hryggleysingja
eins og til dæmis skel- og skor-
dýra. Þessar náttúrulegu trefjar
hafa þann eiginleika að vera
jákvætt hlaðnar og bindast auð-
veldlega við neikvætt hlaðin efni
eins og slæmt kólesteról og fitu,
sindurefni og rauð blóðkorn.
„Þegar við vorum að byrja var
kítósan lítt þekkt hér á landi en
eftir að hafa komist í kynni við
íslenska vísindamenn sem höfðu
starfað í áratugi hjá DuPont í
Bandaríkjunum við rannsóknir
á kítósan var ákveðið að reisa
líftækniverksmiðju hér á Sigló”
segir Sigríður Vigfúsdóttir fram-
kvæmdastjóri Primex. Hún segir
það mikil forréttindi að fá að lifa
og hrærast í nýsköpunarheiminum
með þeim sigrum og ósigrum sem
því fylgja. Primex hlaut nýsköp-
unarverðlaun árið 2012 fyrir að
framleiða verðmæti úr úrgangi og
ná árangri á erlendum mörkuðum.
Trefjarnar skráðar sem
lækningatæki
Af þeim vörumerkjum sem
Primex á er ChitoCare þekktast
á landinu. Undir merkið falla
ýmsar lækningavörur fyrir sár,
húðvörur og fæðubótarefni.
Merkið LipoSan Ultra er eftirsótt
í Bandaríkjunum og Asíu og eru
fyrirtæki eins og Now Foods að
nota það í sínar vörur. „LipoSan
eru lífvirkar trefjar sem hafa góð
áhrif á meltingu, þyngdarstjórnun
og slæmt kólesteról. Annars er
ChitoCare medical sára -og örg-
elið okkar virkilega vinsælt enda
náttúruleg vara með mikla virkni
hvort sem um er að ræða alvarleg
sár eða ýmsa húðkvilla. Það og
ChitoCare medical sáraspreyið
eru skráð sem lækningatæki í
Evrópu með klínískar rannsóknir
og einkaleyfi á bak við sig. En
okkar vinsælasta vara er þó fæðu-
bótarefnið Hair, Skin & Nails
en það er þróað af Dr. Helene
Lauzon framkvæmdastjóra rann-
sókna og þróunar hjá okkur” segir
Sigríður.
„Ég vil þakka Eyjamönnum fyrir
frábærar viðtökur á ChitoCare
beauty snyrtivörunum og
ChitoCare medical sáravörunum í
gegnum árin og ekki síst stelpun-
um í Apótekaranum fyrir frábært
samstarf. Nú er ChitoCare orðið
hluti af nýju Ísfélagi Eyjamanna
og Siglfirðinga og við hjá Primex
hlökkum mikið til samstarfsins”
segir Sigríður.
Dótturfélag Ísfélagsins framleiðir
hágæða vörur úr rækjuskel
Sigríður Vigfúsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Primex á Siglufirði.
Nítján ára drengur með alvarleg
brunasár. Eftir tveggja mánaða
meðferð með ChitoCare medical
sárgelinu voru engin sjáanleg ör.
Sex klukkustundum eftir sólbruna
og notkun á ChitoCare medical
græðandi spreyi.