Fréttir - Eyjafréttir - 05.07.2023, Blaðsíða 47
5. júlí 2023 | | 47
Hverra manna ert þú? Mamma
mín heitir Auður Ásgeirsdóttir
og pabbi minn heitir Gunnar Ingi
Gíslason.
Braut? Ég útskrifaðist af nátt-
úrufræðibraut.
Uppáhalds við FÍV? Ég verð
að segja félagsskapurinn og
vinátturnar sem ég myndaði á
skólagöngunni minni, bæði ný
sambönd og ræktaði gömul frá
grunnskóla.
Ráð fyrir nýnema haustsins?
Skipulagning er númer 1, 2 og
3 og ekki gera heimavinnuna
deginum fyrir (sorry Óli Týr).
Mæli ekki með að vera með
kveikt á kerti þegar þið eruð að
læra í spænsku, það eru mikl-
ar líkur á því að það kviknar
í heimavinnunni (talandi af
reynslu).
Hvernig var tilfinningin að
útskrifast? Ég var rosa spennt
fyrir því að vera búin með þennan
áfanga og pressan fór heldur betur
af öxlunum þegar ég kláraði öll
prófin. Ég áttaði mig ekki á því
fyrr en nær dróg að útskriftinni að
ég myndi aldrei vera í tíma aftur
með Radinku eða þjást í tímum
með Óla Týr og ég mun sakna
þess innilega.
Hvað er planið núna? Planið núna
er að vera ung og njóta. Vinna,
vinna, vinna í sumar og líklega
ferðast, ætli maður skoði ekki
stöðuna eftir ár á því hvort að
maður hendi sér í háskóla.
Lokaorð? Ég vil þakka öllum sem
stóðu með mér í gegnum þessa
skólagöngu og ég óska nýnemum
góðs gengis. Takk fyrir mig FÍV.
ÚTSKRIFTARNEMAR S ITJA FYRIR SVÖRUM SALKA SÓL ÖRVARSDÓTTIR / salka@eyjafrett ir. is
www.skipalyftan . is // 488 3550
Góða skemmtun á Goslokahátíð
RAGNHEIÐUR RÓS
Gunnarsdóttir
Hverra manna ert þú? Mamma
mín heitir Fríða Hrönn Halldórs-
dóttir og stjúppabbi minn er Ágúst
Sævar Einarsson.
Braut? Ég er útskrifuð með stúd-
entspróf af Félagsfræðilínu.
Uppáhalds við FÍV? Það sem
mér finnst það besta við FÍV eru
nemendur skólans. FÍV gefur
okkur nemendum tækifæri á að
halda áfram að hitta sömu krakka
daglega og frá því í grunn- og
leikskóla ásamt því að sækja
okkur góðrar menntunar.
Ráð fyrir nýnema haustsins? Að
njóta þess að vera í skólanum og
taka þátt í félagslífinu þar sem
þessi ár eru mjög fljót að líða.
Hvernig var tilfinningin að út-
skrifast? Tilfinningin var virkilega
góð, ég fann fyrir miklu stolti og
gleði. Á sama tíma var þó skrítið
að hugsa út í það að í þetta skipti
færum við krakkarnir líklega öll
í sitthvora áttina og myndum því
ekki hittast daglega líkt og síðan á
leikskóla
Hvað er planið núna? Í haust mun
ég hefja fornám í Tækniskólanum
í hönnun- og nýsköpun.
Lokaorð? Muna að fylgja hjartanu
og vera sama um það sem öðrum
finnst.
GUÐBJÖRG SÓL
Sindradóttir