Fréttir - Eyjafréttir - 05.07.2023, Blaðsíða 21
5. júlí 2023 | | 21
Það var mikið öskufok af fjallinu
og gasmengun ef þannig stóð á
vindáttum,” segir Karl. „Fólk var
að flytja inn í húsin og kallaði mig
inn af götunni þar sem ég átti leið
um. Það bauð manni inn til að sjá
hjá sér og bað mig um að blessa
heimili sín. Það kom mér á óvart
að fá svona óskir frá ókunnugu
fólki. Mér fannst þetta sýna traust
og í senn feginleika yfir að vera
komin heim – en líka kvíða. Kvíð-
inn var oft nánast áþreifanlegur þó
að ekki væru höfð orð á því.”
Karl segist oft hafa hugsað um
hve lítið var talað um kvíðann þótt
margir væru þrúgaðir af honum.
„Ég fann það helst á konunum að
þær fluttu oft ófúsar til Vest-
mannaeyja eftir gosið. Karlarnir
þurftu að fara aftur heim vegna
vinnu sinnar því það var verið að
koma atvinnutækjunum í gang.
Konurnar fylgdu mönnum sínum
og börnin voru ekki alltaf mjög
hrifin af því að fara aftur heim.
En það var ekkert lengur eins og
áður var. Gamla gatan var ef til
vill komin undir hraun og þetta
kunnuglega var horfið. Fólk var
komið inn í nýjar og að sumu leyti
ógnvænlegar aðstæður. Í mörgum
blundaði líka ótti við að það færi
aftur að gjósa.”
Börnin óttuðust annað eldgos
Karl fór að kenna í Gagnfræða-
skóla Vestmannaeyja um haustið.
Þá fann hann að það var einnig
grunnt á kvíða hjá börnunum
gagnvart því að það færi að gjósa
aftur. „Ég fann til með þessum
börnum, hvað þau voru mörg tætt.
En það var sjaldnast orðað,” segir
Karl.
„Fyrsta félagsstarfið í Vest-
mannaeyjum eftir gosið var
messurnar. Það var messað á
hverjum sunnudegi í Landa-
kirkju. Ég byrjaði líka strax með
barnastarf um haustið. Það var
enginn organisti og hver söng
með sínu nefi. Fólk sem hafði
verið í kirkjukórnum leiddi
sönginn. Ég fékk fermingarbörnin
til að vera meðhjálparar og til
að hringja klukkunum. Það var
heilmikið sport hjá þeim að vera
hringjarar og klingja hinum fornu
klukkum Landakirkju sem hafa
blessað Vestmannaeyinga frá því
um Tyrkjarán. Þá fann maður líka
hvað það skipti fólk miklu máli að
eiga athvarf í helgidóminum með
þeim orðum, táknum, hljómum og
söng sem því tilheyrir,” segir Karl.
Hann segir að orðið „áfallahjálp”
hafi ekki verið orðið til á þessum
tíma. „Sterkasta áfallahjálp sem
til er er bænin og trúin. Trúin á
Guð og kærleikurinn til náungans.
Það kemur fram í umhyggju og
samhjálp. Mér hefur fundist þetta
vera skólabókardæmi um þann
styrk sem í þessu er fólginn.”
Samfélagið í Eyjum féll fljótt
í skorður. Karl fann fyrir því að
fólki var mjög í mun að færa
allt til sama horfs og hafði verið
fyrir gos. Það vildi aftur gömlu
Vestmannaeyjar sem aldrei komu
þó aftur. „Það er hins vegar undra-
vert að sjá hvað Eyjarnar hafa
blómgast og blómstrað. Öll þessi
saga er vitnisburður um einstakt
kraftaverk. Máttarverk Drottins.
Það er ekki hægt að segja annað,”
segir Karl.
Gosbyrjunar og
gosloka minnst
Þegar eitt ár var liðið frá upphafi
Heimaeyjargossins var haldin
guðsþjónusta í Landakirkju að
kvöldi 22. janúar 1974. Herra Sig-
urbjörn Einarsson biskup Íslands
og faðir Karls kom til Vestmanna-
eyja og flutti áhrifaríka prédikun.
Þegar leið að því að ár væri liðið
frá goslokunum þann 3. júlí 1974
kom Karl að máli við Reyni Guð-
steinsson bæjarfulltrúa, sem söng
í kirkjukórnum, og bar undir hann
þá hugmynd að bæjarstjórnin
kæmi að þakkar- og bænastund í
Landakirkju að kvöldi 3. júlí til að
minnst goslokanna. Því var afar
vel tekið. Tóku m.a. þeir Magnús
H. Magnússon bæjarstjóri, Sigur-
geir Kristjánsson forseti bæjar-
stjórnar og Reynir Guðsteinsson
þátt með lestrum úr Ritningunni
og ávörpum. Kirkjukórinn söng
og leiddi almennan söng undir
stjórn Guðmundar H. Guðjóns-
sonar, organista. Þessi stund í
hinni fornu og fögru Landakirkju
var mjög eftirminnileg. „Ein af
stóru, helgu stundunum sem ég
á svo dýrmætar minningar um,”
segir Karl. Daginn eftir var heil-
mikil goslokahátíð í bænum.
Enginn viðstaddra
slapp ósnortinn
En hvernig var þessi tími fyrir þig
sem ungan og óreyndan prest?
„Þetta var mikill reynsluskóli
fyrir mig, eiginlega doktorsnám,”
segir Karl. „Maður hugsar ekkert
út í það þegar maður er ungur og
nógu vitlaus, einhendir sér bara
í hlutina. En þetta var vissulega
einstök og dýrmæt reynsla. En
ég var aldrei einn, það voru svo
margir sem lögðust á eitt. Og
bænir hinna mörgu og ótal hendur
umhyggjunnar sem réttar voru
fram skiptu sköpum þá, eins og
jafnan.“
Hann segir að mikið návígi við
óblíð náttúruöfl og ógn þeirra
þekkist í mörgum byggðarlögum
á landinu. Sjóslys og náttúruham-
farir hafa víða tekið mikinn toll.
Þegar Karl kom til Eyja talaði
fólk um Helgaslysið hræðilega
þann 7. janúar 1950 eins og það
hefði gerst daginn áður. Við
slíka voðaatburði fyrr og síðar
hefur mikið reynt á prestana og
sálusorgun þeirra. Sem betur eru
alvarleg sjóslys orðin fátíðari en
áður. En segja má að hamfarirnar
í Vestmannaeyjum veturinn 1973
hafi verið stórbrotnari og snert
fleiri en dæmi voru um. Enginn
viðstaddra slapp ósnortinn frá
þeirri reynslu.
Á hvítasunnu í vor hittist hluti þeirra 104 sem fermdust í Skálholti 1973. Þar tók Kristján Björnsson, vígslubiskup og
fyrrum Eyjaprestur á móti hópnum. Þau sem mættu þegar 50 ára afmælis fermingarinnar í Skálholti var minnst:
Fremsta röð: Marta Jónsdóttir, Jóna Ósk Garðarsdóttir, Guðrún Ragnarsdóttir, Kristján Björnsson,
Guðrún Runólfsdóttir, Sigurlín Guðrún Ingvarsdóttir, Lovísa Sigurðardóttir og Ágúst Ingi Sigurðsson.
Næsta röð: Elín Eiríksdóttir, Eygló Kristinsdóttir, Helga Margrét Sveinsdóttir, Bjarney Magnúsdóttir, Bjargey Stefáns-
dóttir, Svanhildur Guðlaugsdóttir, Rósa Guðjónsdóttir, Auðbjörg Svava Björgvinsdóttir og Sigrún Þórarinsdóttir.
Efsta röð: Vignir Þröstur Hjálmarsson, Guðmundur Ingvarsson, Þorsteinn Finnbogason, Sigurður Sveinsson, Lárus
Guðjónsson og Hermann Haraldsson. Mynd Guðmundur Sv. Hermannsson.
Á Vestmannaeyjaflugvelli 16. febrúar 1973. F.v. Ottó Michelsen, Sigurbjörn
Einarsson biskup, séra Karl Sigurbjörnsson og séra Jónas Gíslason. Þeir Ottó
og séra Jónas voru í stjórn Hjálparstofnunar kirkjunnar sem kom gríðarsterk
inn í allt hjálparstarf í Eyjum. Ljósmynd: Guðmundur Sigfússon