Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 05.07.2023, Blaðsíða 43

Fréttir - Eyjafréttir - 05.07.2023, Blaðsíða 43
5. júlí 2023 | | 43 Atvinnuuppbygging í Vestmanna- eyjum heldur áfram af fullum krafti en félagið Icelandic Land Farmed Salmon, eða ILFS, stendur í miklum framkvæmd- um bæði inn við Friðarhöfn og austur á eyju í Viðlagafjöru. Hrafn Sævaldsson, fjármálastjóri ILFS, segir verkefnið á áætlun og gangi vel. „Seiðastöðin sem verið er að reisa inn við Friðarhöfn er farin að taka á sig mynd. Við erum byrjuð að setja inn búnað og reisugildið á húsinu var fyrr í mánuðinum. Þangað tökum við inn laxahrogn í nóvember sem taka síðan 10 mánuði að vaxa og dafna upp í 100 gramma seiði sem verða í kjölfarið flutt upp í mateldisstöðina í Viðlagafjöru. Þar eru jarðvegsframkvæmdir í fullum gangi og verið að útbúa landið fyrir 6 áfanga verkefnisins. Fyrsti hlutinn af verkefninu er að byggja seiðastöðina og fyrsta áfangann“ segir Hrafn. Hver áfangi er keraklasi af 8 lokuðum tönkum sem taka á móti seiðun- um og hýsa laxinn í um það bil 12 mánuði þar til hann vegur 5 kílógrömm að meðaltali en þá hefst slátrun. Hrafn segir óþarfi að hafa áhyggjur af flutningum milli seiðastöðvar og eldisins þar sem útsendingar eru fáar og einn tankbíll sem kemur að þeim. „Við erum bara rétt í þessu að fara að byggja fyrstu mannvirkin austur á eyju, sem sagt þessa tanka, sláturtanka, innviði eins og rafstöð og ýmsar þjónustu- byggingar. Við horfum mikið til verkefnis sem heitir Salmon Evolution í Noregi varðandi hönnun á mannvirkjum og öðru slíku, sem og til annarra land- eldisverkefna á Íslandi sem eru í þróun. Það tekur eitt og hálft ár að gera fyrsta áfangann og um leið og hann er búinn þá förum við koll af kolli“ segir Hrafn. Kostn- aður við uppsetningu verkefnis- ins hleypur á tugum milljarða. Markmiðið er að slátra 32.000 tonnum af laxi upp úr kerum sem skilar sér rúmum 27.000 tonnum af afurðum. Fiskurinn verður fyrst tilbúinn til slátrunar í lok árs 2025. Endurnýta úrgang og kolefnisbinda “Það sem er nýtt við þetta verk- efni á heimsvísu, þó það sé búið að stunda landeldi á Íslandi í áratugi, þá er þetta landeldi með mjög stórar framleiðslueiningar og við erum að fara að notast við blöndu af gegnumstreymiskerfi og endurnýtingu á sjó, sem mun endurnýta 65% af þeim sjó sem við dælum upp. Við dælum öllum sjó upp á tveimur jarðlögum, annars vegar á 40 metra dýpi og hinsvegar á 100 metra dýpi en sjórinn sem fæst þar er heldur heitari. Til þess að halda við vatnsgæðin í kerfinu þá hreinsum við út öll föst efni, bæði úrgang frá fiskinum og fóðurleifar, sem og við losum koltvísýring úr sjónum og dælum inn súrefni“ segir Hrafn en við hreinsunina á eldisvatninu verður til laxamykja sem er þurrkuð niður með pressu og getur skilað sér í efni í áburð sem nota má við landgræðslu. „Ef við getum nýtt mykjuna okkar í að ná upp einhverri gróðurþekju þá er það að sjálfsögðu frábært og það felur í sér kolefnisbindingu” segir Hrafn. Ýtt á innviði „Seiðastöðin gengur fyrir fersku vatni og við höfum gengið mjög langt í að hanna hana þannig hún sé bæði örugg og afkastageta hennar sem best. Við höfum fjárfest í besta búnaði til seiða- framleiðslu sem völ er á í heim- inum. Þar erum við að endurnýta vatnið rúmlega 99% og við getum líka framleitt 6 sekúndulítra af ferskvatni með okkar búnaði með því að vinna jarðsjó. Við þurfum ekki nema 2 sekúndulítra af vatni fyrir stöðina sjálfa. Annars er óhætt að fullyrða að þetta verkefni hefur ýtt á innviði hér í Eyjum, bæði á nýja vatnslögn, rafstrengi, bætta hafnaraðstöðu og skipa- flutninga, svo fátt eitt sé nefnt. Allir bæjarbúar munu njóta góðs af sterkari samfélagsinnviðum” segir Hrafn. Mikill meðbyr með verkefninu „Það er ekkert annað hægt að segja en að maður sé bjartsýnn fyrir framtíðinni. Það hefur geng- ið vel að fjármagna verkefnið og við finnum mikinn meðbyr með því. Við höfum reynt að vanda til allra verka og passa að verk- efnið falli vel inn í umhverfið og samfélagið. Einnig höfum við lagt mikla áherslu á það að eignarhald sé sterkt í Vestmannaeyjum og að heimamönnum verði gert kleift að taka þátt í þessu ævintýri með okkur. Við erum þakklát fyrir þann stuðning og framsýni sem sveitarfélagið hefur sýnt í verki í þessu risa stóra atvinnuþróunar- verkefni og fyrir þann velvilja og áhuga sem íbúar í Eyjum hafa sýnt verkefninu” segir Hrafn. Markmiðið að framleiða 27.000 tonn af laxaafurðum SALKA SÓL ÖRVARSDÓTTIR salka@eyjafrett ir. is Starfsfólk á skrifstofu ILFS. Frá vinstri: Grétar Sindrason, Bragi Magnússon, Kristín Hartmannsdóttir, Sólveig Rut Magnúsdóttir og Hrafn Sævaldsson. Seiðastöðin í botni Friðarhafnar er farin að taka á sig mynd.Mateldisstöðin sem rís senn í Viðlagafjöru.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.