Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 05.07.2023, Blaðsíða 38

Fréttir - Eyjafréttir - 05.07.2023, Blaðsíða 38
38 | | 5. júlí 2023 Allir Eyjamenn sem upplifðu gosnóttina örlagaríku 23. janúar 1973 hafa einstæða sögu að segja. Frásagnirnar eru áhrifaríkar, bæði um gosnóttina sjálfa og ekki síst hvað tók svo við í kjölfarið hjá okkur Eyjamönnum, finna sér samastað og fóta sig í tilverunni á nýjan leik. Ýmsir lentu á hrakhól- um en aðrir komist til skyldmenna og vina á fastalandinu eftir að hafa flúið eldsumbrotin. Í mínum fyrri störfum í fréttamennsku tók ég þó nokkur viðtöl þessu tengt. Gosnóttina 1973 var ég á sjöunda ári og var vakinn af foreldrum mínum þar sem við bjuggum á Geirlandi, Vestmanna- braut 8, með þeim orðum að ég ætti að drífa mig á fætur og klæða mig því það væri komið eldgos og við ættum að fara niður á bryggju. Í mínum huga skipti mestu máli að fá að taka Grámann með mér sem var kisan mín en hana sá ég aldrei aftur enda var hún eflaust fljót að láta sig hverfa í þessum hamförum. Foreldrar mínir og systir mín ásamt frænku okkar sem hafði gist hjá okkur þessa nótt fórum svo niður á Friðar- höfn með eina ferðatösku eins og meginþorri Eyjamanna, þar sem Eyjaflotinn beið. Ekki lá fyrir um borð í hvaða bát við færum. Faðir minn, Gunnar Marel Tryggvason vélstjóri, var á milli skipa og ekki búinn að fá pláss fyrir vetrarver- tíðina. En það kom sér vel fyrir Sigurð Ólafsson skipstjóra og útgerðarmann á Ingólfi VE 216. Hann var ekki byrjaður að róa á vertíðinni og vantaði því mann- skap um borð og réði Gunnar Marel á staðnum. Voru þeir aðeins tveir í áhöfn í þessari eftirminni- legu ferð. Fjölskyldan fór að sjálf- sögðu með. Alls voru 35 manns um borð samkvæmt heimasíðunni Allir í bátana þar sem hægt er að sjá nöfn allra farþeganna. Sterkust er minningin þegar við stóðum upp á dekki og fylgd- umst með eldspúandi eimyrju úr sprungunni austur á eyju þegar við fórum fyrir Heimaklett. Þessi sjón er greipt í barnsminninu. Síð- an vorum við drifin niður í lúkar því ösku tók að rigna yfir okkur. Ærandi hávaði í lestinni Ingólfur VE 216 var 48 tonna eikarbátur og þröngt á þingi fyrir flóttafólkið um borð. Við lágum þétt í lúkarnum en þónokkrir þurftu að gista niður í lest. Ekki fór eins vel um fólkið í lestinni því nýbúið var að skipta um vél í Ingólfi VE og setja eðal ameríska Detroit Diesel vél um borð sem slakað var niður í lest og svo dreg- in á sinn stað. Detroit vélin malaði eins og köttur en hins vegar var ekki búið að setja upp milliþilið fyrir vélarrýmið og því var ærandi hávaði þar sem fólk lá í lestinni við hliðina á nýju vélinni. Tals- verður veltingur var því nokkurt brim var á leiðinni í Þorlákshöfn. Pottar, pönnur og önnur tiltæk ílát voru notuð sem æludallar. Ég minnist þess þegar við hlustuð- um á ríkisútvarpið. Lýsing Árna Gunnarssonar fréttamanns á því sem fyrir augu bar þegar hann var um borð í flugvél sem flaug yfir gosstöðvarnar var gríðar- lega áhrifarík. Tár sást á hvarmi, myndum við nokkurn tímann getað snúið aftur? Ingólfur VE 216 sigldi til Þorlákshafnar eins og meginþorri flotans. Vel var tekið á móti okkur og fóru farþegar þar frá borði en Gunnar Marel og Sigurður sigldu svo bátnum áfram til Reykjavíkur. Við vorum lánsöm og fengum inni hjá frændfólki okkar í Kópavogi. Síðar fluttum við í Ölfusborgir og fengum úthlutað viðlagasjóðshúsi á Selfossi, í svokallaðri Eyja- byggð, þar sem vel fór um okkur. Á Selfossi byrjaði ég að æfa knattspyrnu en fyrsti þjálfarinn minn var Bjössi rakari sem margir þekkja til. Vel var tekið á móti mér í skólanum á Selfossi og við Eyjakrakkarnir stóðum þétt saman. Hafnarbúðir voru haldreipið En haldreipið í mínum huga í öllu þessum hörmungum sem dundu yfir voru Hafnarbúðir í Reykjavík þar sem fjölskyldan fór reglulega til að hitta aðra Eyjamenn og fá upplýsingar og úrlausn sinna mála því þar var að mörgu að huga. Því fylgdi alltaf eftirvænting að koma í Hafnarbúðir og hitta aðra krakka og ættingja, fá súpu eða annað góðmeti og hlusta á samræður fullorðna fólksins um stöðu mála í gosinu þar sem ég drakk í mig hvert orð. Hálfri öld síðar hef ég haft tækifæri sem borgarritari Reykja- víkurborgar að kynna mér betur aðkomu borgarinnar að móttöku flóttafólksins frá Eyjum þar sem taka þurfti á móti fimm þúsund manns á einu bretti. Í gögnum borgarinnar er af ýmsu að taka en borgarráð fundaði strax 23. janúar 1973 og sendi bæjarstjórn Vest- mannaeyja og Vestmannaeyingum öllum samúðarkveðjur vegna þeirra alvarlegu atburða „sem nú hafa gerzt í Vestmannaeyjum.“ Borgarráð bauð þá Vestmanna- eyinga, sem til Reykjavíkur komu, velkomna til borgarinnar, þó undir óskemmtilegum kringumstæðum sé eins og það var orðað. Borg- arráð samþykkti einnig á þessum fundi að bjóða bæjarstjórn Vest- mannaeyja aðstöðu í Hafnarbúð- um sem bækistöð og skrifstofu, endurgjaldslaust. Hafnarbúðir urðu aðal samkomustaður og upplýsingamiðstöð Vestmanna- eyinga í gosinu. Farsælt og gott samstarf var á milli bæjarstjórnar og borgaryfirvalda á gostímanum. Alls tók Reykjavíkurborg á móti hátt í fimm hundruð skólabörnum á einu bretti inn í skólakerfi borg- arinnar og var það áskorun eins og nærri má geta. Borgarráð bauð Vestmannaeyja- bæ að verða heiðursgestur Menn- ingarnætur í Reykjavík í ágúst 2023 í tilefni af 50 ára goslokaaf- mæli og langvarandi vinatengsl- um bæjarfélaganna. Var það vel til fundið og tilhlökkunarefni. Þorsteinn Gunnarsson Höfundur er borgar­ ritari og fyrrum blaða­ maður á Eyjafréttum Eldspúandi eimyrja greipt í barnsminnið Þorsteinn ásamt æskuvinkonu sinni Fríðu Egilsdóttur við Geirland. Myndin er tekin ári fyrir eldgos eða 1972. Á bak við þau er heimur sem hvarf undir hraun. Úr einkasafni. Hafnarbúðir voru félags- og upplýsingamiðstöð fyrir Vestmannaeyinga í eldgosinu. Mynd: Ljósmyndasafn Reykjavíkur.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.