Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 05.07.2023, Blaðsíða 32

Fréttir - Eyjafréttir - 05.07.2023, Blaðsíða 32
32 | | 5. júlí 2023 Hluthafar Ísfélags Vestmannaeyja hf. samþykktu sameiningu við Ramma hf. og breytingu á nafni félagsins í Ísfélag hf. þann 14. júní síðastliðinn. Nú er rekstur félagsins á fjórum stöðum um landið; í Eyjum, á Þórshöfn, í Þorlákshöfn og á Siglufirði. „Nýja nafnið er stutt og laggott en við munum þó auðvitað tala um Ísfélagið hér eftir sem hingað til. Félagið er elsta starfandi hluta- félag landsins og með vísan til þess að starfsemin er nú á fjórum stöðum á landinu þá er nafnið heppilegt” segir Stefán Friðriks- son, framkvæmdastjóri félagsins. „Ætli þeir á Þórshöfn séu ekki ánægðastir með nafnabreytinguna enda hefur verið vandræðagangur að tala um Ísfélag Vestmannaeyja á Þórshöfn” bætir Stefán við til gamans. „Starfsmenn í sameinuðu félagi þekkja vel þær áskoranir sem fylgja því að vera með starfsemi á fleiri en einum stað. Nú standa menn frammi fyrir því að í stað tveggja starfsstöðva þá eru þær fjórar en við erum vel mönnuð á öllum stöðum og álaginu er vel dreift. Dreifð starfsemi skapar ef til vill tækifæri sem við munum geta nýtt okkur í framtíðinni” segir Stefán. Skeifurnar halda sér „Það er gaman að segja frá því að á tímabili hét Rammi hf. Þormóður Rammi - Sæberg hf. Rammanafnið hverfur þó ekki vegna þess að það verður okkar vörumerki fyrir tilteknar gæðavör- ur eins og til dæmis sjófrystan fisk af Sólberginu. Ísfélag Vestmanna- eyja og Rammi eiga sér, eins og allir vita, langa og merka sögu í atvinnulífinu og það breytist ekki þó nöfnin heyri nú sögunni til. Skeifurnar verða líka áfram á sínum stað sem merki félagsins og það gleður bæði hesta og menn” segir Stefán. „Í Þorlákshöfn hefur Rammi ver- ið með fiskvinnslu og útgerð þar sem starfa um 50 manns. Félagið hefur dágóðar humarheimildir en veiðar á humri voru stöðvaðar 2022 og nú er veiðibann í gildi um óákveðinn tíma. Það verða einhver ár í að humarveiðar verði leyfðar aftur og vinnsla geti hafist á ný” segir Stefán en frystihúsið í Þorlákshöfn hefur því unnið bolfisk og kola. Á Siglufirði er frystitogarinn gerður út og þar er einnig öflug rækjuverksmiðja sem vinnur úr rækjuafla Múlabergs og norsku hráefni. Loðnuvertíðin sú besta í manna minnum „Rekstur félagsins hefur gengið vel það sem af er ári. Loðnuver- tíðin í vetur var sú besta í manna minnum hvað snertir veður og veiðin var afar góð. Við fengum stamtals um 64.000 tonna kvóta og þrátt fyrir að stórum hluta kvótans hafi ekki verið úthlutað fyrr en í lok febrúar þá tókst að veiða hann allan. Allt lagðist á eitt með okkur og sjómenn og starfs- menn í landi stóðu sína vakt af mikilli prýði. Frystitogarinn Sól- berg hefur fiskað vel og aflabrögð bolfiskskipanna hafa verið góð. Þá hafa mjöl- og lýsismarkaðir verið í hæstu hæðum, en því er hins vegar ekki að neita að rækjuveiðar og -vinnsla hafa átt erfitt upp- dráttar eins og fram hefur komið í fréttum að undanförnu” segir Stefán. Breytingar í flotanum Til viðbótar við skipin sem gerð hafa verið út frá Eyjum bætast við frystitogarinn Sólberg, sem vinnur að jafnaði úr um 10.000 tonnum af hráefni á ári, Jón á Hofi sem gerður er út frá Þorlákshöfn og Múlaberg sem er gert út á rækju. Í smíðum er ísfisktogarinn Sig- urbjörg sem áætlað er að bætist við flotann í stað eldri skipa fyrir árslok. Sigurbjörg verður gerð út frá Þorlákshöfn og er nú í smíðum við Celiktrans skipasmíðastöð- ina í Istanbúl í Tyrklandi sem er sama stöð og smíðaði Sigurð VE fyrir um 9 árum. Skipið er búið öllum besta búnaði, hefur 1.795 kílóvatta aðalvél og tekur 180 tonn af fiski í lest. „Ísfélagið er eitt af þeim félög- um sem hefur fjöregg þjóðarinnar í höndum sér. Því fylgir mikil ábyrgð. Félagið stendur traustum fótum bæði rekstrar- og eignar- lega. Sterk félög hafa fleiri og betri tækifæri til að sækja fram og auka verðmætasköpunina í grein- inni en þau sem veikari eru. Hér eru úrvals starfsmenn og stjórn- endur, sannarlega valinn maður í hverju rúmi. Það er því engin ástæða til annars en að horfa bjartsýnn fram á veginn” segir Stefán aðpurður út í framtíðina hjá nýju Ísfélagi. Eitt af fjórum stærstu sjávarútvegs- fyrirtækjum landsins Sameinað félag með fjórar starfsstöðvar um landið og mun bera nafnið Ísfélag hf. SALKA SÓL ÖRVARSDÓTTIR salka@eyjafrett ir. is Stefán Friðriksson, framkvæmdastjóri Ísfélags. Tölvugerð mynd af Sigurbjörgu.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.