Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 05.07.2023, Blaðsíða 24

Fréttir - Eyjafréttir - 05.07.2023, Blaðsíða 24
24 | | 5. júlí 2023 Cup í ár, Suður Ameríkumótið á næsta ári, svo Gold Cup 2025, möguleika á komast á HM 2026 og vera með í lokakeppni næstu fjögur sumur ef allt gengur upp.“ Hefurðu mannskap og meðbyr til ná takmarkinu? „Já, ég held það ef allt gengur upp hjá okkur og liðið tekur framförum. Það er gríðarlega stórt að fá að taka þátt í Suður Ameríkukeppninni á næsta ári þar sem verða lið frá Suður- Mið og Norður Ameríku. Það yrði gífurleg upplifun og sex bestu liðin frá Mið- og Norður Ameríku taka þátt í HM 2026 sem gestalið. Þannig að það er ansi mikið og stórt framundan. Spennandi og gaman en líka erfitt þegar þú ert að kynnast svo mörgu nýju, leik- mönnum, stjórnarfólki, umhverfi og menningu. Þetta er bara hörku vinna.“ Vilji til að gera betur Hvað hefur komið þér mest á óvart. „Það er hvað stutt þeir eru komnir,“ segir Heimir eftir langa umhugsun. „Ég held að ég móðgi engan með því að segja það. Hélt að þeir væru komnir lengra í fag- mennsku en raun ber vitni en það er fullur vilji til að vinna það upp. Þeirra bestu leikmenn standa með okkur og staðan er ekki ósvipuð og hjá íslenska landsliðinu þegar við Lars tókum við því árið 2011. Þegar þú ert með atvinnumenn sem leika með stórum liðum í Evrópu og stráka sem spila heima, eru ekki atvinnumenn þarf lítið út af að bera til að leikmanni líði ekki vel í allt öðrum aðstæðum en hann er vanur sem atvinnumaður. Margt getur farið úrskeiðis en allt er gert til að bæta umgjörðina fyrir þessa stráka. Að þeim líði vel þegar þeir koma í landsliðið. Það þarf til að ná sem mestu út úr þeim þegar kemur að landsleikj- um. Þetta er eitt verkefnið núna.“ Með Heimi er Guðmundur Hreiðarsson, markmannsþjálfari og Svíi sem þjálfar 21 landslið Jamaíku verður honum til aðstoð- ar. „Aðrir í teyminu eru heima- menn og svo bætist Spánverji í hópinn í sumar. Hann vann með mér í Katar.“ Þurfti ekki langan umhugsunarfrest „Ég tel það bæði hollt og þrosk- andi að stíga reglulega út fyrir þægindarammann og það hefur alltaf blundað í mér ævintýraþrá. Ég er m.a. lærður Ævintýraleið- sögumaður og hef ofboðslega gaman að prufa nýja hluti, kynn- ast öðrum þjóðum og menningu þeirra. Ég þurfti því ekki langan umhugsunarfrest þegar þetta tilboð barst,“ segir Íris þegar blaðamaður snýr sér að henni. „Hér tala allir ensku en hún er svolítið bjöguð hjá þeim. Stund- um erfitt að skilja þau,“ segir hún um tungumálið. „Það eru kostir og gallar eins og allsstaðar. Við búum í mjög fallegu lokuðu hverfi og það getur verið talsverður hausverkur þegar kemur að því að verða sér út um helstu nauðsynjar. Það kom mér á óvart hvað mikið er um skyndi- mat og hollustan ekki númer eitt. Það er langt að sækja fyrir okkur en kjöt, fiskur, grænmeti og ávextir eru alveg fyrsta flokks. Fólkið er yndislegt en mætti vera skipulagðara. Það kom mér á óvart og speglast í umferðinni sem er ein allsherjar kaos. Þeir flokka ekki sorp og mikið um plast sem er fleygt á ströndina. Spá ekki mikið í það og láta hverjum degi nægja sína þjáningu,“ segir Íris. „Þeir lifa í deginum í dag. Það er þeirra kúltúr að vera afslapp- aður, njóta dagsins og eru ekkert að stressa sig á því þó eitthvað sé ógert. Það er þeirra lífsstíll,“ segir Heimir. „Þar getum við lært helling af þeim og spurning um að finna milliveginn. Fólkið er mjög yndælt, syngjandi og brosandi og maður á erfitt með að trúa því að það sé mikið um glæpi. Við höfum ekki kynnst þeirri hlið en glæpatíðni er mjög mikil, eitthvað er um fátækt og laun verkafólks eru lág. Samt eru aðföng mjög dýr,“ segir Íris. Bauð Bolt í Puffin Run Upp úr þessu umhverfi koma upp stjörnur eins og Usain Bolt, margfaldur heimsmeistari, heimsmetshafi og handhafi ellefu verðlauna á Ólympíuleikjum í 100 og 200 metra hlaupi. Hefurðu hitt hann? „Já. Hann er ósköp rólegur og viðkunnanlegur drengur. Ég hvatti hann til að mæta í Puffin Runið hans Magga Braga í Eyjum en hann sagðist vera hættur að hlaupa. Hann hefur mikinn áhuga á föðurlandi sínu og er mikið heima sem er virðingavert. Hann hefur áhuga á fótbolta og kemur til að horfa á æfingar hjá lands- liðinu,“ segir Heimir. Þegar þau er spurð hvort þau hafi flutt með sér eitthvað sem heillar Jamaíkabúa er Heimir fljótur til svars. „Bara það að ég kom með Írisi,“ segir hann en hvað með dóttur Bob Marley? „Ég hef ekki hitt hana en rætt við hana í síma. Hún sér um kvennafótboltann,“ segir Heimir en þar lætur Íris til sín taka. „Mér bauðst að starfa með undir 20 ára og 17 ára landsliðunum, er líkamsræktarþjálfari ofl. í þjálf- Það fer vel á með Kristófer og heimsmetshafanum Usain Bolt. Íris er í þjálfarateymi yngri landsliða kvenna og segir það spennandi verkefni. Íris og liðsrútan sem er vel merkt.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.