Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 05.07.2023, Blaðsíða 14

Fréttir - Eyjafréttir - 05.07.2023, Blaðsíða 14
14 | | 5. júlí 2023 „Surtseyjargosið stóð í fjögur ár, frá 1963 til 1967 og ég held að enginn sem hér bjó, og hafði upplifað Surtseyjargosið, hafi reiknað með að gosið á Heimaey kláraðist á nokkrum mánuðum. Að gos sem byrjaði í janúar yrði aflýst 3. júlí sama ár. Gosið búið. Punktur. Og þá hafði lítið gerst í nokkuð langan tíma. Sjálfur kom ég hingað í maí til að vinna. Þá var ennþá formlega gos í gangi en lítil eða engin umbrot,“ segir Páll Magnússon, forseti bæjarstjórnar, um sína upplifun af Heimaeyjar- gosinu og því sem á eftir kom. Páll er sonur Magnúsar H. Magnússonar bæjarstjóra sem stóð í stafni bæjaryfirvalda í Vestmannaeyjum þegar ósköpin dundu yfir. „Allir þeir sem réðu fyrir bænum sögðu alltaf að gos- inu myndi brátt ljúka og hér yrði innan tíðar allt eins og áður, hvað svo sem þeim fannst inni í sér. Auðvitað varð það ekki alveg svo einfalt og gott. Margt fólk missti allt sem það átti og hafði byggt upp í áranna rás og fékk auðvitað ekki fullbætt. Og margir sneru ekki aftur.“ Páll segir áhugavert að skoða þetta 50 árum síðar. ,,Mínar skoð- anir á þessu öllu saman litast held ég talsvert af samtölum mínum við pabba; því sem honum fannst um þetta eftir að atinu sjálfu var lokið. Því sannast sagna talaði ég eiginlega ekkert við hann á meðan sjálf ósköpin gengu yfir. Og þær skoðanir ríma reyndar vel við það sem aðrir hafa sagt. Ekki síst Páll Zóphóníasson en sennilega hafa engir tveir menn unnið þéttar saman en hann og pabbi meðan á þessu stóð. Ég held t.d. að ég hafi sjaldan talað við pabba í síma án þess að Palli Zóph væri í herberginu með honum. Hann var alltaf í aðra röndina að tala við hinn Pallann,“ segir Páll og veltir upp spurningunni um ákvörðunina sem aldrei var tekin. Bara sjálfsagður hlutur Hann segist hvergi hafa fundið því stað í fundargerðabókum bæjarstjórnar, hvorki frá fyrstu dögum gossins né þegar kom fram á sumarið. „Að tekin hefði verið sérstök ákvörðun um að endurbyggja bæinn. Annað kom líklega aldrei til greina og kallaði því ekki á sérstaka ákvörðun. Þetta var bara sjálfsagður hlutur, að hreinsa, byggja upp og lokka alla heim. Auðvitað var dregin upp bjartari mynd af þessu en efni stóðu raunverulega til. Það gerði pabbi líka. Ég man eftir viðtali við karl föður minn í lit sem tekið var úti í Höfða. Staðsetningin þar var örugglega að hans eigin frumkvæði hans því Stórhöfði var þá einn af fáum stöðum á Heimaey þar sem græn- an blett var að finna. Skilaboðin skýr, hér er allt grænt og fallegt, komið heim! Hér verður vertíð, bátarnir byrjaðir að landa og allt að fara af stað. Iðar allt af lífi! En auðvitað var það ekki alveg þannig. Sama aðferð og Eiríkur rauði notaði þegar hann seldi mönnum hugmyndina um gróð- ursældina á Grænlandi. Mér hefur alltaf fundist þetta áhugaverð spurning - um sögulegu tímamóta ákvörðunina sem var aldrei tekin.“ Óvissa og ótti Páll segir oft gert alltof lítið úr þeim raunverulegu hremmingum sem Eyjamenn gengu í gegnum á þessum tíma. „Auðvitað upp- lifði fólk upp til hópa gríðarlega vanlíðan, öryggisleysi, ótta og óvissu um framtíð sína, ættingja og ástvina. Margir horfðu til þess hvað Surtseyjargosið stóð lengi og voru því ekkert að gera ráð fyrir að snúa heim í bráð – ef þá nokkurn tíma. Hvar eigum við að búa? Hvar fáum við vinnu? Í hvaða skóla komast börnin okkar? Er allt sem við áttum heima í Eyjum ónýtt? Fáir sem ekki hafa reynt geta ímyndað sér hverskonar upplifun þetta er. Það er auðvitað mýta eða goðsögn að allir Eyjamenn hafi staðið sterkir, glaðbeittir og bjartsýnir frá fyrsta degi – staðráðnir í að snúa heim í fullvissu þess að allt yrði eins og það var. Þetta er auðvitað skemmtileg mýta – svolítið Ösku- buskuævintýri – en mýta samt. En svo gerðist auðvitað ævintýrið. Bærinn reis sannarlega úr öskunni og er eitt mesta velsældarsamfélag á Íslandi í dag – og það bæjarfélag þar sem íbúarnir eru ánægðastir samkvæmt könnunum.’’ Bandaríkjamenn til bjargar Páll segir að björgun innsiglingar- innar og um leið hafnarinnar hafi auðvitað verið lykilatriðið. „Til þess þurfti að stoppa Flakk- arann og beina hraunstraumnum frá norðri til austurs. Mörgum þótti sjálf hugmyndin fráleit og háðsglósurnar ekki sparaðar. Þetta tókst þó m.a. með góðri hjálp Bandaríkjamanna í hraunkæl- ingunni – og sumir ferðamenn þaðan tárast þegar þeim er gerð grein fyrir hlutdeild þeirra í björg- un byggðar í Vestmannaeyjum. Það má kannski segja með ein- hverri eftiráspeki að ekki sé alveg víst að allt hefði farið endanlega til andskotans þótt innsiglingin hefði lokast. Fræðilega mætti sjálfsagt hugsa sér að sprengd hefði verið leið inn í höfnina aftur eða Eiðið opnað. Ég er samt ekkert viss um að það hefði verið gert. Margra ára vinna með gríðarlegum tilkostnaði hefði hugsanlega stoppað slíka aðgerð. En hraunkælingin tókst, eins og reyndar flest annað við björgun bæjarins, og þess njótum við í dag.“ Samheldnin og nándin meiri Hvernig væru Vestmannaeyjar í dag ef ekki hefði gosið? „Flókin spurning en kannski er svarið mjög einfalt: Að breyttu breytanda værum við líklega alveg eins. Eyjan sjálf væri grænni og gróandalegri; innsiglingin og höfnin verri; sumir sem sneru ekki aftur og afkomendur þeirra væru hér enn; aðrir sem eru hér hefðu ekki komið og svona mætti áfram telja. Kannski er samheldn- in og nándin meiri í samfélaginu eftir að hafa sameiginlega tekist á við þessar hamfarir og upp- bygginguna í kjölfarið - en í öllum aðalatriðum held ég að við værum bara eins. En auðvitað er samt ekkert alveg eins’’. Páll Magnússon Forseti bæjarstjórnar: Ákvörðun sem aldrei var tekin ÓMAR GARÐARSSON omar@eyjafrett ir. is ” Allir þeir sem réðu fyrir bænum sögðu alltaf að gosinu myndi brátt ljúka og hér yrði innan tíðar allt eins og áður, hvað svo sem þeim fannst inni í sér. Auðvitað varð það ekki alveg svo einfalt og gott. Páll í tuðruferð með dóttur og dóttursyni, Eddu Sif og Magnúsi Berg.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.