Úrval - 01.07.1965, Page 6
4
ÚRVAL
Það getur verið, að þessi söng-
stíll þeirra geri þá ekki vinsæla
meðal þeirra Bachdýrkenda, sem
vilja sinn Bach eingöngu ómengað-
an og upprunalegan, en á sinn glað-
lega og iífmikla hátt eru Swingle
Singers ekki fjær liinum „sanna“
Bach en Leopold Stokowski, er
hann breytir orgelfúgum í „bacc-
hanölur" af Tannhanser-gerðinni,
eða Glenn Gould, er hann leikur
harpsikord-tilbrigði á píanó, eða
200 manna oratorium-söngfélag,
sem syngur kórverk, er samin voru
fyrir aðeins 20 manna kór.
Útsetjarar hafa löngum sótt á
miðin hjá .Bach með góðum árangri.
í handrit hans vantar margvísleg-
ar þýðingarmiklar upplýsingar um
túlkun verkanna. Skammstafanir á
tölusettu bössunum eru t. d. þannig,
að það er ails óvíst, hvaða hljóð-
færi er ætlazt til, að notuð séu, eða
hvernig skal fylla út hljómana.
Bach og félagar hans voru vanir
að ákveða allt slíkt, um leið og
verkið var flutt, líkt og jazztónlist-
armenn gera einmitt.
Hver kynslóð hefur ])ví orðið að
endurskapa Bach í sinni eigin mynd
vegna skorts á nauðsynlegum upp-
lýsingum. Og síðustu tvær aldirn-
ar hefur Bach þannig endurfæðzt
tólf sinnum.
Fyrsta „barn Bachs“ í andlegum
skilningi var Mozart. Er hann heim-
sótti St. Tómasar kirkjuna í Leip-
zig, gafst honum eina tækifærið til
þess að hlýða á kórverk eftir Bach.
„Strax og kórinn hafði sungið
nokkra tóna, lyftist Mozart i sætinu,
alveg furðulostinn,“ sagði blaða-
maður einn, sem var þar viðstadd-
ur. „Og eftir nokkra tóna í við-
bót hrópaði hann: „Hvað er þetta?
Hér er eitthvað, sem hægt er að
læra af!“ hrópaði hann svo, þegar
verkinu var lokið. Hann bað um
að fá að sjá meira af verkum Bachs,
og „það var sannarlega ánægja að
sjá, hversu ákafur Mozart var, er
liann settist niður með nótnablöð-
in umhverfis sig, í höndunum, á
hnjám sér og næstu stólum. Hann
gleymdi öllu öðru og stóð ekki upp
aftur, fyrr en hann hafði skoðað
öll þau verk Bachs, sem fyrir fund-
ust þarna í kirkjunni. Svo bað hann
um eintök af þeim.“
í byrjun voru allir aðdáendur
Bachs háðir handskrifuðum afrit-
um. Jafnvel verkið „Veltempraða
klaverið" var aðeins til í handriti
fram að 1800. En þegar hinn ungi
Beethoven kemur fram á sjónar-
sviðið, vekur liann samt fyrst á sér
eftirtekt sem túlkandi verka Bachs.
Árið 1783 skýrði tónlistartímarit
eitt frá því, að liinn 12 ára gamli
Beethoven „leiki mjög vel á slag-
hörpu og af miklum þrótti, hann
sé mjög leikinn í að lesa af blaðinu
og í stuttu máli sagt leiki hann
mestallt verkið „Veltempraða klav-
erið eftir Sebastian Bach.“
„Hann ætti ekki að kallast Bach
(lækur) heldur Meer (haf) vegna
hinna ótæmandi auðæfa, sem fólg-
in eru í hugmyndum hans á sviði
hljómlistarinnar,“ sagði Beetlioven
eitt sinn í gamni árið 1825.
Fyrstu prentuðu eintökin af „The
Well-Tempered Glavier“ urðu nokk-
urs konar biblía heillar kynslóðar
á tímabili rómantísku stefnunnar.
Munnmæli herma, að hinn ungi Lizt