Úrval - 01.07.1965, Side 13

Úrval - 01.07.1965, Side 13
SJÖTTl DEMANTURINN 11 „Ég skal aðstoða frk. Allan sjálf- ur,“ sagði hann. „En tíndu bara upp hringana.“ Ég fann fimm hringa í mesta flýti og lét þá í sín gróp. En sjötta hringinn fann ég ekki og hélt, að hann hefði oltið niður um raufina milli sýniskassans og gluggans. Ég hljóp kringum afgreiðsluborðið og gáði þar en sá hvergi hringinn. Nú sá ég út undan mér, að stóri maðurinn var að fara til dyra. Allt i einu laust þeirri fullvissu niður í hugskot mitt að hann væri með hringinn. Hann hafði staðið á þeim eina bletti, sem hringurinn gæti hafa oltíð á. Ég náði honum um leið og hann tók i handfangið á hurðinni. „Afsakið,“ sagði ég. Hann sneri sér við og nú leið óendanleg mínúta, án þess að hvorugt okkar mælti orð af vörum. Ég bað þess i huganum, að mér auðnaðist að bjarga þeirri framtíð, sem mér fannst allt snúast um. Það var slæmt að velta hringaöskju um koll, en þó afsakanlegt, en að týna hring var óafsakanlegt. Og ef ég gerði einhvern hávaða, og kæmi ekki rétt fram við manninn, gat það orðið endir allra minna vona. „Hvers óskið þér,“ sagði hann og ég sá vöðvana titra í kinnum hans. Ógæfa gat dunið yfir mig vegna þess, sem hann hafði gert. Samt fann ég af einhverri eðlishvöt, að hann hefði ekki komið inn í búð- ina til að stela — ef til vill aðeins til að hlýja sér andartak og láta sér Iíða betur. Ég vissi, hvað það var að leita að atvinnu árangurs- laust og ég gat vel skilið gremju þess manns, sem sá aðra kaupa ó- hófsvörur meðan hann ásamt fjöl- skyldu sinni hefði varla í sig né á. „Ilvers óskið þér,“ endurtók hann. Skyndilega vissi ég, hverju svara skyldi. Mamma sagði alltaf, að flestir menn væru i rauninni góðir. Ég gat ekki hugsað mér, að þennan mann langaði til að fara illa með mig. Ég leit út um gluggann og sá, að allt var að sveipast i þoku. Ég sagði: „Þetta er mitt fyrsta starf. Það er erfitt að fá vinnu nú, er ekki svo?“ Hann horfði á mig með ákefð, og brosti síðan mjög góðlátlega. „Jú, vissulega,“ sagði hann. „En ég er viss um að þér dugið vel í yðar starf. Má ég óska yður til ham- ingju.“ Hann rétti fram höndina og tók í mína. „Ég óska yður alls hins bezta,“ hvíslaði ég um leið og hann opnaði dyrnar og hvarf út í þokuna. Siðan sneri ég inn í búðina og lét sjötta dcmantinn á sinn stað. Rétta leiðin til þess að komast áfram í lífinu er að hefjast handa nú þegar. Ef þú hefst handa nú Þegar, muntu vita margt næsta ár, sem þú veizt ekki núna og þú hefðir ekki vitað næsta ár, ef þú hefðir beðið. William Feather
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.