Úrval - 01.07.1965, Blaðsíða 22
20
ÚRVAL
Frakkland og veldi þess hefur
verið húgsjón hans allt hans lif.
Það hefur verið köllun hans að
berjast fyrir Frakkland. í einka-
lífi sínu er liann menntaður og sið-
fágaður yfirstéttar Frakki. Hann er
ekki mælskur, en oft fyndinn; hann
hefur mikinn áhuga á bókmenntum
og lifir hófsömu lífi, og hann cr
gersamlega laus við hégómagirnd
Mussolinis og æðisköst Hitlers.
Á hinn bóginn ferðast hann
meira og lieldur fleiri veizlur cn
nokkur annar franskur forseti
hefur gert. Hann vill leggja áherslu
á mikilvægi stöðu sinnar, af því
að hún er tákn um veldi Frakk-
lands.
Löngu áður en de Gaulle vann
sigurinn 1944, skrifaði Churchill
eftirfarandi um hann: „Ég hef átt
í stöðugum erfiðleikum með de
Gaulle.... En ég skildi hann og
dáðist að honum, þótt mér gremdist
hrokafull framkoma hans. En jafn-
vel þegar hann hegðaði sér verst,
var sem Frakkland sjálft birtist í
persónuleika hans, hin mikla, stolta
og metnaðargjarna þjóð.“
XXX
Vordag einn börðu tveir snáðar aS dyrum hjá roskinni konu, sem
býr í næsta húsi. Og ég heyrði annan þeirra segja brosandi við hana:
„Megum við slá fyrir þig grasflötina í sumar? Maðurinn þinn verSur
ábyggilega of þreyttur til þess á kvöldin."
Hún svaraði játandi, og eftir að gengið hafði verið frá samningnum,
lögðu þeir leið sina heim til mín. Ég ákvað að fullvissa Þá um, að minn
ungi, splunkunýi eiginmaður hefði áreiðanlega nóg þrek aflögu á kvöld-
in og þar að auki þyrftum við að spara peninga. En litli sölumaður-
inn var skrambi slunginn, því að hann sagði við mig: „Daginn frú.
Viltu, að við strákarnir sláum flötina fyrir þig í sumar, eða ætlar mað-
urinn þinn kannski að láta konuna ráða yfir sér i einu og öllu?“
Betty Dickerson
SJÁLFVIRKUR SlMI
Vestur-þýzki „hugarsíminn" er svo snjall, að Það þarf aðeins að ýta
laust á hann með fingurgómi til þess að fá það samband, sem óskað
er eftir. Hann var sýndur á Hannoversýningunni í fyrra, og nú er hann
raunverulega kominn á markaðinn. I stað skífu eða númerahnappa
eru á honum litlar dældir með tölum og stöfum í og þarf rétt aðeins
að koma við þær með fingurgómnum til þess að fá samband. Síma þess-
um hefur verið gefið heitið „Etafon". 1 honum er rafreiknir, sem get-
ur munað þau númer, sem oftast er hringt í. 1 honum er innbyggður
hátalari og hljóðnemi, sem auðveldar samtöl við heyrnasljótt fólk.
Síminn er þannig útbúinn, að mjög auðvelt er að skrifa niður skilaboð,
þ. e. hendurnar eru frjálsar. English Digest