Úrval - 01.07.1965, Page 54

Úrval - 01.07.1965, Page 54
52 ÚRVAL glöð, þegar þessi aldni nágranni þeirra fór að sýna áhuga á Marie. En stúlkan varð óttaslegin. Hana grunaði, að þau myndu öll mynda með sér samsæri um að fá hana til þess að giftast öldungnum, og hún varð svo óttaslegin, að hún varð líkamlega sjúk og varð að vera rúmliggjandi um tima. En helzta einkenni Marie reynd- ist vera fórnarvilji hennar fyrr og síðar á ævinni. Móðir hennar grátbað liana um að bjarga fjölskyldunni. Walewski sýndi henni umhyggju og aðdáun og virtist sannkallaður heiðurs- maður. Elzbieta vinkona hennar hafði nú yfirgefið eiginmann sinn og flutzt heim til Póllands frá París. Hún bað nú Marie um að fórna ekki æsku sinni og ástarkennd og sagði, að slík fórn gæti aðeins orðið til þess, að á vegi hennar yrðu grimmilegar freistingar síðar á ævinni. Elzbieta hafði sjálf verið gift öldruðum manni og vissi því, hvað hún söng. En þótt eðlisávisun Marie snerist öndverð gegn ráðahag þessum, ákvað hún, að hún yrði að gera það, sem hagkvæmast yrði fyrir ættingja hennar. Þau Marie og Walewski gengu því í hjónaband, hann greiddi allar skuldir fjölskyldunnar, og þau fóru i brúðkaupsferð til ítaliu. 1 ferð þeirri reyndist hann „góður og liugulsamur“ samkvæmt vitnisburði Marie og þess verður að eiga konu, er léti sér annt um hann. Og síð- ar eignuðust þau svo son, sem reyndist vera fremur veikbyggð- ur. Þannig var ástatt um Marie, þeg- ar Napóleon hóf þá sókn, sem Pól- verjar treystu svo ákaft, að yrði til þess að færa landi þeirra frelsi. Marie hafði ætíð verið skynsöm stúlka. Nicholas Chopin, faðir hins mikla tónskálds, hafði verið kenn- ari hennar, og liann hafði lýst því yfir, að hún væri mjög bráðþroska, bæði hvað snerti trúarhita og skiln- ing á stjórnmálum. Og hún hafði einmitt snúið sér að stjórnmálum. Kannski liefur hún gert það að nokkru leyti til þess að bæta sér upp hinn gráa hversdagsleika þess lífs, er hún hafði verið þvinguð til þess að lifa. Hún beindi allri at- orku sinni og öllum tilfinninga- ofsa sínum að því að vinna að frelsi Póllands. Margar aðrar pólsk- ar koriur unnu að þessu sama máli, enda hafa pólskar aðalskonur ætíð unnið á mjög virkan hátt að þeim málum, sem voru i mörgum öðrum löndum álitin vera eingöngu í verkaliring karlmannanna. Það var málstaður Póllands og ekkert annað, sem hafði fengið Marie til þess að leita á fund Napo- leons i Brone. En Napóleon hafði misskilið heimsókn þessarar fögru, ljósliærðu og ungu konu. Keisarinn hafði ekki fyrr lokið hlinni opinberu innreið sánni i Varsjá á nýjársdag en hann tók að leita að ungu konunni, sem hafði tekið vagn lians með áhlaupi og töfrað hjarta hans. Duroc lét leita að ungu konunni um þvera og endilanga Varsjá. Lög- reg'lumenn gengu hús úr húsi í leit að ungri konu, sem þeir vissu engin
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.