Úrval - 01.07.1965, Qupperneq 65
ÓGLEYMANLEGUR MAÐUfí
63
nú kominn heim til þjóðfélagsins
sem frjáls maður. Hann vann upp
frá þessu á Suðureyri, aðallega við
fiskverkun. Þar vann ég með lion-
um nokkur missiri og geymi siðan
minningar um sérstæðan mann og
liugþekkan, gáfaðan og fjölfróðan.
Frá barnæsku hafði hann hneigzt
mjög til bóka, var orðinn „hús-
lestrarfær“, er hann var sjö ára a&
aldri og las á uppvaxtarárum allt
það, er hann náði í af bókum og
öðru rituðu máli. Jafnframt því tók
hann ungur að yrkja og skrifa upp
sagnir, ljóð og rímur. Og i sjúk-
dómslegunni ó unglingsárunum hóf
hann að skrifa dagbók og hélt þeirri
iðju fram óslitið til hinstu stundar.
Á hrakningsórum sínum notaði
hann hverja stund frá vinnu og
jafnframt margar stolnar stundir
til ritstarfa og yrkinga. Hann var
jafnan mjög heilsuveill, þoldi illa
erfiðisvinnu, sem liann varð þó
tíðum að sæta, og var á seinni árum
beygður maður og lézt fyrir aldur
fram, aðeins 43 ára að aldri.
Þegar litið er yfir ritverk Magn-
úsar virðist furðu gegna, hversu
miklu hann afkastaði á þessu sviði.
Hann skrifaði hálfar og heilar næt-
ur, reis árla úr rekkju og hafði
oft skrifað eða ort í 1—2 klukku-
stundir, áður en hann fór til vinnu,
kl. 6 að morgni. Og eftir vinnu
skrifaði hann fram yfir miðnætti,
venjulega við bágborið ljós, stund-
um i skímunni meðan dagurinn var
að renna eða dagurinn var að
hníga. Ef lagðar væru i beina línu
enda við enda allar línurnar í rit-
verkum hans, myndi láta nærri að
sú lína næði frá Elliðaám við
Reykjavík, austur yfir Hellisheiði
og til Hveragerðis, um 40 km. leið.
Er i þessu reiknað með dagbókum
hans, rímnaflokkum, þjóðsagna-
söfnum, kvæðakverum, uppskrift-
um lians af sögum, kvæðum og rím-
um, bréf hans og pistlar.
Dagbækur skrifaði hann frá 19
ára aldri til dauðadags, 24 ár alls.
Þær eru alls 4351 blaðsiða. Önnur
rit hans eru: Þjóðsögur og munn-
mæli, 12 sögur, — Þjóðsögur, 19
sögur, — Frá heiðum til hafs, 144
blaðsíður, kvæði og kviðlingar eftir
ýmsa, með skýringum og umsögn-
um, — Grima, 374 blaðsíður, með
fjölbreytilegu efni, bréfum ræðum,
])jóðsögum, upphafi að skáldsögu
meðal margs annars, •— Upphaf að
ævisögu, 79 bls. — Sjö rimnaflokk-
ar: Rimur af Amhálesi kóngi, Ríma
af Vígkæni kúahirði, — Rimur af
Hálfdani Barkarsyni, — Gullþóris-
rímur, — Rímur af Hrafnkatli
Freysgoða, — Rímur af Fjalla-Ey-
vindi og rímur um Angantý og
Hjálmar. — Auk þessara rímna orti
liann fjöldamargar einstakar rím-
ur, og má þar til nefna Landnáms-
mannarímu kringum ísafjarðar-
djúp, Frakkarímu, um grunsamlega
menn, sem gengu á land af frönsku
skipi á Flateyri og talið var, að
væru íslendingar, Formannsrímur
úr Alftafirði og Súgandafirði, auk
margs annars. Ljóðum sinum safn-
aði hann í 9 bækur alls, smáar og
stórar.
Eftir því sem næst verður komizt,
mun Magnús hafa ort nálægt 11
þúsund visur. Meiri hluti þess eru
ferhendur, en þó er mikill fjöldi
kvæða með 8 ljóðlínu erindum,