Úrval - 01.07.1965, Side 87

Úrval - 01.07.1965, Side 87
Á FERÐ MEÐ KALLA 85 óskað eftir, kraftmikinn, hrað- gengan bíl með húsi aftan á, tveggja manna rúmi, eldavél með fjórum hellum, upphitunartæki, kæliskáp og Ijósum, sem allt gekk fyrir butangasi, salerni með kem- iskum rotútbúnaði, geymslurými og neti fyrir gluggum til þess að verja mig gegn skordýrum. Ég skírði farartækið Rocinante eftir hinum fræga hesti Don Quixote. Og er brottfararmorgunninn nálg- aðist ákvað ég að taka með mér ferðafélaga, gamlan, franskan og virðulegan loðhund, er ber nafnið Kaili. Kalli er fæddur stjórnmála- maður og samningamaður. Hann kýs samninga fremur en áflog, enda er þetta alveg rétt af honum, þvi að hann er mjög ónýtur i áflogum. En hann er góður varðhundur og félagi og vill heldur ferðast en gera nokkuð annað, sem ímynd- unarafl hans spannar yfir. Hann iagði fram drjúgan skerf til þess, að ferð þessi mætti ganga vel. CONNECTICUTFYLKI Og brottfararmorgunninn rann upp, sólskinsbjartur haustmorgunn. Við hjónin kvöddumst i flýti, því að okkur er báðum meinilla við skilnaðarstundir. Er við Kalli tókum stefnuna norður eftir Connecticutfylki, datt mér i hug, að það væri skrambi gaman að geta boðið fólki, sem ég hitti á leiðinni, að skreppa með mér heim í bílhús til þess að fá sér einn litinn með mér, en ég hafði bara gleymt að birgja mig upp af drykkjarföngum. Og svo kom ég auga á litla búð i skógarrjóðri skammt frá veginum. Hjá henni var vel hirtur garður, og fyrir neðan gluggann héngu blómakassar. Ég pantaði amerískt whisky, skozkt whisky, gin, ver- mouth, konjak, brennivín og kassa af bjór. Þetta var skrambi stór pöntun fyrir litla sveitaverzlun. Eignadinn var aldraður maður, hálf grámyglulegur í framan en þó ung- legur, og þessi stóra pöntun hafði djúp áhrif á hann. „Þetta hlýtur að eiga vera stór- veizla.“ „Nei, þetta eru bara ferðabirgð- ir.“ Hann hjálpaði mér að bera kass- ana út að bílnum, og ég opnaði hurðina á Rocinante. „Hvað, ætlarðu i þessu?“ „Auðvitað.“ „Um allt?“ Og þá kom ég auga á það, sem ég átti eftir að sjá svo oft á ferðalagi inínu, ákafan löngunarsvip. „Al- máttugur! Ég vildi, að ég gæti farið lika.“ „Nú, kanntu ekki vel við þig hérna?‘ „Jú, jú, það er allt í lagi með liað. En ég vildi samt, að ég' gæti farið.‘ „Nú, þú veizt jafnvel ekki, hvert ég er að fara.“ „Mér er alveg sama. Mig langar til þess að fara hvert á land sem er.“ Er ég nálgaðist stóru borgirnar, varð ég að lokum að yfirgefa veg- ina, sem bugðuðust undir limi trjánna. Ég gerði allt hvað ég gat til þess að aka framhjá. Þetta voru
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.