Úrval - 01.07.1965, Page 88

Úrval - 01.07.1965, Page 88
86 ÚRVAI háværar iðnaðarborgir með óskap- legri umferð. Bandarískar borgir eru eins og grcifingjaholur. Þær eru umkringd- ar alls konar drasli ■— allar saman hrúgum af ónýtum og ryðguðum bilum og eru næstum að kafna í ruslhaugum af öllum mögulegum gerðum. Allt, sem við Bandaríkja- menn notum, kaupum við í kössum, pökkum, dósum, fötum, tunnum og alls kyns umbúðum, sem við elskum svo heitt. Hinir fjallháu hlaðar af alls konar hlutum, sem við fleygj- um, eru miklu fyrirferðarmeiri en þeir hlutir, sem við notum í raun og veru. Á þessu má öllu fremur sjá hina ofsalegu og næstum á- byrgðarlausu ofgnótt framleiðslu okkar. Er ég ók um l)essar slóðir, datt mcr i hug, að í Frakklandi og á Ítalíu hefðu allir þessir hlutir, sem við köstuðum frá okkur, verið not- aðir á einn eða annan hátt. Þetta er ekki sagt sem gagnrýni á neitt ákveðið kerfi, en ég velti því stundum fyrir mér, hvort sá tími muni ekki koma, að við höfum ekki lengur efni á eyðslusemi okkar. NEW HAMPSHIREFYLKI f'.g beygði inn á hvíldarsvæði akandi ferðamanna og stöðvaði Rocinante þar. Svo dró ég fram landakortabókina mína. Skyndilega urðu Bandaríkin svo risavaxin, að það var alveg ótrúlegt. Þau virtust vaxa svo ofboðslega, að það virtist algerlega útilokað að komast nokk- urn tima þvert yfir þau. Ég velti þvi fyrir mér, hvers vegna í ósköp- unum ég hefði farið að steypa mér út í framkvæmd, sem ekki væri hægt að framkvæma. Þetta var líkt og að byrja á að skrifa skáldsögu. Þegar ég horfi fram á yeginn og' mér verður hugsað til þess dapur- lega, óframkvæmanlega verkefnis að verða að skrifa 500 blaðsíður, verð ég gripinn slíkri vanmáttar- kennd, að það er sem ég sé að verða veikur, og ég veit, að ég get aldrei gert þetta. Svo skrifa ég smám sam- an eina blaðsíðu og síðan aðra. Ég get ekki leyft sjálfum mér að hugsa lengra fram á veginn en til eins dagsverks í senn, og ég úti- loka þann möguleika úr vitund minni, að ég muni nokkru sinni ljúka verkinu. Og þannig var því nú farið, er ég leit á ímynd Ame- riku, marglita og skæra. Kalli rak nefið fast upp að eyra mínu og sagði: „Ftt.“ Hann er eini liundurinn, sem ég hef nokkru sinni vitað til, að geti borið fram samhljóðann F. Það er vegna þess, að framtennur hans eru bognar, en sú ógæfa hindrar hann í að geta tekið þátt í hundasýningum. Orðið „Ftt“ þýðir venjulega, að hann vilji gjarnan heilsa upp á runn eða tré. Ég opnaði bílhurðina og hleypti honum út, og hann hóf siðan hina virðnlegu athöfn með tilhlýðilegri viðhöfn. Við lögðum svo af stað að nýju og ókum allan síðari hluta dagsins. Leið mín lá norður í Vermontfylki, svo austur í New Hampshirefylki. Þá var ég kominn upp í Hvítufjöll. I söluskýlunum við þjóðvegina lágu hrúgur af gullnum og rauðbrúnum graskerum og eldrauðum eplum, sem voru svo unaðsleg og sæt undir
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.