Úrval - 01.07.1965, Page 110

Úrval - 01.07.1965, Page 110
108 ÚRVAL nániið við teikniskólann, sótti hann um upptöku í listaskóla franska ríkisins. Umsókn hans var synjað. Hann reyndi aftur, og enn einu sinni, en var alltaf neitað um inn- göngu í skólann. Þetta voru fyrstu, bitru vonbrigðin, sem hann varð fyrir i viðskiptum sínum við opin- bera aðila á listasviðinu. Það var ekki skemmtileg reynsla. Beiskja lians á siðari árum í garð „páfanna" í heimi listanna, átti rætur sínar að rekja til þessara fyrstu vonbrigða. Árið 1863 missti Rodin Klót- hildi systur sína, sem honum þótti ákaflega vænt um. Hann sá mjög mikið eftir henni. Harmur hans var jafnvel svo yfirþyrmandi, að litlu munaði að hann missti vitið. Það var kaþólskum presti að þakka, að hann hélt sönsum, og um tíma var hann sjálfur að hugsa um að ganga í þjónustu kirkjunnar. Árið 1865, þegar Rodin var tutt- ugu og fimm ára, kynntist hann ung'ri stúlku, sem átti eftir að verða lífsförunautur hans. Rósa Beuret var ættuð úr Champagnehéraði, en liafði fengið vinnu í París sem saumakona, og það var í sambandi við þetta starf hennar að þau kynntust. Rodin var um þessar mundir að vinna að skreytingum fyrir THÉATRE DES GOBELINS og þar hitti hann ungu stúlkuna fyrst. Þau urðu þegar ástfangin og fóru að búa saman skömmu síð- ar. Enda þótt Rósa væri alltaf köll- uð „frú Rodin“, giftust þau ekki fyrr en 1917. Um svipað leyti og Rodin kynnt- ist Rósu Beuret, hætti hann að vinna hjá skreytingameistaranum, en gerðist aðstoðarmaður liins fræga myndhöggvara, Carrier-Belle- use. Hann vann í sex ár hjá liinum nýja meistara og öðlaðist mikla reynslu í höggmyndasmíði, en hann gat ekki þroskað sinn persónulega stil af því að starf hans var fólgið í því að Ijúka við uppköst að myndum, sem Carrier-Belleuse af- henti honum. Sköpunargáfa hans fékk enga útrás. Hann losnaði iir þessu ófrjóa starfi þegar fransk- þýzka stríðið brauzt út árið 1871, því að hann var kallaður i herinn. En Rodin hafði megnasta viðbjóð á hermennsku og hann flúði til Brussel rétt fyrir Parísaruppreisn- ina, en varð að skilja Rósu og ung- an son þeirra eftir um stundarsak- ir, meðan hann leitaði sér frægðar og frama í höfuðborg Belgíu. Heppnin var með honum, því að hann fékk strax atvinnu við teikni- störf. Siðan fluttist Rósa með son þeirra til Brussel, og þar lifðu þau hamingjusömu lífi í litlu húsi í útjaðri borgarinnar. Rodin var nú að vinna við eitt frægasta verk sitt, ,,.Bronzöldina“, og hafði allgóðar tekjur af sölu listaverka sinna. Árið 1875 fór hann til Ttalíu, til þess að kynna sér list endurreisnar- tímabilsins, en þó einkanlega verk Michaelangelos. „Bronzöldin" var sýnd opinberlega i Brussel 1877, en svo var veruleikablærinn mikill í þessu stórfenglega verki að nokkr- ir menn úrsýningarnefndinni héldu þvi fram, að Rodin hefði ekki getað skapað það með eðlilegum hætti. Bæði í Brussel og Frakklandi héldu hinir „lærðu“ fast við þá skoðun sína, að Rodin hefði tekið mót af
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.