Úrval - 01.07.1965, Side 113
ÁGÚST RODIN
111
stað á öðru minna torgi. En þrátt
fyrir ýmsa erfiðleika, fór vegur
Rodins þó vaxandi. Hann var
sæmdur riddarakrossi Heiðursfylk-
ingarinnar frönsku árið 1888. og
verk hans voru orðin þekkt viða um
heim. Ágúst Rodin var orðinn
heimsfrægur höggmyndasmiður
fjörutíu og átta ára gamall.
Rodin hélt allt sitt líf tryggt við
þá listgrein, sem hreif nann í æsku
—- teikninguna, og hann er eink-
um frægur fyrir nektarmyndir sín
ar. Sagt er, að hann hafi notað
tvær eða þrjár fyrirsætur í einu,
til þess að myndirnar yrðu gædd-
ar meira lífi og hreyfingu. Stúlk-
urnar, sem voru fyrirsætur hans,
gengu hægt um vinnustofuna, með-
an Rodin gerði frumdrætti að teikn-
ingum sínum.
Eftir þvi sem árin liðu, hjaðnaði
andúðin gegn Rodin og skilningur-
inn á verkum hans óx. Á sýning-
unni mildu í París árið 1900, voru
verk hans sýnd í sérstökum sal,
enda var snilld hans þá orðin lýðn-
um ljós. Árið 1902 fór Rodin til
London í annað sinn og var tekið
með kostum og kynjum. Nokkru
síðar var hann kjörinn forseti Al-
þjóðafélags listmálara, höggmynda-
smiða og myndskera. Árið 1904 var
„Hugsuðurinn" sýndur í fyrsta
skipti opinberlega, þessi heilsteypta
og áhrifamikla mynd af hugsandi
manni, þar sem Rodin leitast við
að lýsa inntaki og eðli mannlegr-
ar hugsunar.
Rodin bjó á Villa des Brillants
og var önnum kafinn við að gera
brjóstmyndir af auðugum og fræg-
um mönnum hvaðanæva að úr
heiminum. Enda þótt hann væri
orðinn hálfsjötugur, var hann enn
hraustur og heilbrigður. Að vísu
var hann ekki eins afkastamikill
og áður, en hæfileikar hans voru
hinir sömu og fyrr. Hann varð
sjötíu og eins árs árið 1911 og þá
gerði hann t.d. ágæta mynd af
Clemenceau. Játvarður 7. heimsótti
Rodin árið 1908, og' árið eftir voru
verk lians sýnd á sérstakri sýningu
í Metropolitiansafninu i New York.
Hann naut því frægðar og álits
síðustu æviár sín. En heimsstyrj-
öldin fyrri var á næstu grösum,
og brátt var Frakkland og síðan
öll Evrópa, blóðugur vígvöllur.
Rodin gerði erfðaskrá sína 1916 og
ánafnaði franska ríkinu allar frum-
myndir verka sinna. Það var ósk
hans, að þessum listaverkum, á-
samt persónulegum munum lians,
yrði komið fyrir í gömlu, fögru
húsi í París, sem hann hafði keypt.
Þar er Rodinsafnið nú til húsa.
Franska stjórnin greiddi syni Rod-
ins hins vegar nokkurn lifeyri, til
þess að bæta honum upp það mikla
tjón, sem hann hafði beðið við að
missa af arfinum eftir föður sinn.
»»««
E'itt, sem karlmenn geta alls ekki skilið í fari kvenna, er það, hvern-
ig konur skilja svo margt í fari karlmannanna.
Walt Streightift