Úrval - 01.07.1965, Síða 115

Úrval - 01.07.1965, Síða 115
ÁURIF SJÓNVARPS 113 Smckkur barnanna cr kominn í nokkurn veginn fastar skorður þeg- ar á 10—11 ára aldri. Sennilegt er, að barn, sem hueigist að vissri tegund dagskrárefnis í sjónvarpinu, kjósi einnig fremur svipað efni í vinsælum tímaritum (magazines) og kvikmyndum. Komið hefur í Ijós í Englandi, að ef ekki var nema um vissa teg- und sjónvarpsefnis að ræða, sem börnin urðu annaðhvort að horfa á eða ekkert ella, kusu þau fremur að horfa á það, þótt þau ættu ekki von á neinni ánægju af því, og fengu að lokum áhuga á því. Þannig má víkka smekk þeirra og bæta að vissu marki. En eigi börnin l'leiri kosta völ, liafa þau tilbneig- ingu til að kjósa þá tegund dag- skrárefnis, sem þeim hefur áður þótt meira gaman að, og þá er hætt við, að smekkur þeirra verði fastari í formi og þrengri. Er líklegt að sjónvarp á heimili skólanemenda verði til þess að auka dugnað þeirra við námið? Þeirri spurningu er erfitt að svara. Algengt er, að fólk láti í ljós von- ln-igði yfir því, að sjónvarpið skuli ekki kenna börnunum meira en það gerir. Vissulega ætti að vera hægt að nota betur tæki með slík- um möguleikum sem sjónvarpið hefur. Vér ættum í dag að geta verið hreykin af því, að geta bent á yngri kynslóð, sem væri fróðleiks- fúsari, margfróðari og atorkusamari sökum þess, að vér hefðum getað opnað þeim nýjan glugga út til heimsins. Hvað er þá að? Það mætti virðast hrein lastmælgi, að þótt tíu ára barn kunni enn að geta tínt upp nokkra fróðleiksmola úr sjón- varpinu, þá geti 13 ára barn það því aðeins að það sé heimskt, og að sjónvarpið komi barninu að þeim mun minna gagni sem barnið er greindara. Flestir þeir, sem athugað hal'a á- hrif sjónvarps á börn, eru ófúsir að kannast við, að það eigi neinn verulegan þátt í að valda lögbrot- um eða glæpum, sem börnin hafi lært af sjónvarpinu af tilviljun eða ásetningi. Rætur slíkrar gtæpa- hneigðar liggi miklu dýpra en til sjónvarpsins; þær tiggi í skapgerð- inni, áhrifum frá fjölskyldunni, samneyti og andlegum skyldleika við aðra jafnaldra lögbrjótsins eða glæpamannsins. Sjónvarpið getur í hæsta lagi valdið herzlumuninum, og hefur að líkindum aðeins áhril' á þau börn, sem eru fyrirfram spitt eða hneigð til lögbrota. Sökum þess, hve mikið af því skemmtiefni, sem börnin horfa á í sjónvarpinu er ofsafengið (violent), hafa þeir, sem fást við slikar at- liuganir, beint athygli sinni að því hvaða áhrif allur þessi ofsi og ol'- beldi geti haft. í fyrstunni var sett fram sú kenning, að ofbeldi í sjónvarpi kynni að verka líkt og eins konar öryggisloki, sem gæti hjálpað barninu til að losna við innibyrgða löngun til ofbeldis. En nú liafa menn, eftir fjölda margar tilraunir, komizt að alveg gagn- stæðri niðurstöðu. Við vitum að börn, sem eru bneigð til ofbeldis, sækjast sérstak- lega eftir ofsafengnu sjónvarpsefni. Ef nú sjónvarpið gerir frekar að glæða en draga úr ofbeldishneigð
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132

x

Úrval

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.