Úrval - 01.07.1965, Page 117
ÁURIF SJÓNVARPS
115
að sitja ekki nær en i sex feta fjar-
lægð frá sjónvarpsskerminum og
liafa skerminn nokkurn veginn i
augnahæð.
Önnur hlið á sjónvarpsvanda-
inálinu, sem verðskuldar meiri at-
liygli, er sú, hvernig hagnýta megi
betur þá möguleika sem sjónvarps-
tæknin býr yfir. Sú staðreynd hefur
valdið nokkrum vonbrigðum, að
sjónvarpinu hefur ekki tekizt að
gegna þvi hugsanlega hlutverki á
fullnægjandi hátt, að vera gluggi
út til umheimsins, að því hefur
ekki tekizt að gera liina uppvax-
andi kynslóð fróðari og fróðleiks-
fúsari, að það sem sagt hefur að-
eins veitt venjulegu barni tveggja
til þriggja stunda tómstundagaman
á degi hverjum.
Nýlega heyrði ég sögu um konu, sem fékk martröð og rak upp svo
æðislegt angistarvein, að maðurinn hennar vaknaði með andfælum.
Þegar hann spurði hana, hvers vegna hún æpti svona aeðislega, sagði
hún, að hana hefði dreymt, að hún væri á eiginmannauppboði og einn
maðurinn hefði verið seldur á 3000 sterlingspund, en ýmsir aðrir voru
seldir á þúsund sterlingspund, sumir jafnvel á meira. Við þessar fréttir
glaðvaknaði maðurinn. Og svo gerðist hann svo óvarkár að spyrja hana
eftirfarandi spurningar: „Og á hvað fóru svo eiginmenn eins og ég?“
„Nú, það var nú einmitt það, sem kom mér til þess að æpa,“ svaraði
konan. „Þeir lágu þarna i knippum, og knippin voru seld á hálfan átt-
unda shilling." Pierce Harris
Pípureykingamenn eru næstum undantekningarlaust traustir, áreiðan-
legir borgarar. Þeir eyða svo miklum tíma í að hreinsa, fylla og bjástra
við pípurnar sínar, að þeir hafa ekki tíma til þess að komast i neitt
klandur. Bill Vaughan
E'itt sinn heyrði ég mann panta vindlinga í tóbaksbúð. „Vilduð þér
bara gjöra svo vel að láta mig hafa einn pakka af hverri tegund," sagði
hann í afsökunarrómi. „Sko, ég vil gjrnan hætta að reykja, og ég er
að reyna að finna tegund, sem mér geðjast ekki að.“
Frú Hendrix
Skilgreining fyrirmyndareiginkonu: Kona, sem er manni trú, en
reynir að vera eins töfrandi og hún væri það ekki
Bill Ballance
Trúin er mikið afl, eina raunverulega áhrifaaflið i heiminum, en
maður verður að ná til hvers manns með aðstoð hans sérstöku trúar,
ekki man’ns eigin. George Bernard Shaw