Úrval - 01.07.1965, Side 129
nUI/TRÚ OG HUGARBURÐUR
127
sakaS styrjaldir, afbrot, rannsókn-
arrétt og ófrjálslyndi heldur skap-
ar hún og hefur orsakað trúarlegar
efasemdir og taugaveiklun.
Ég efast samt ekki um, að menn
g'eti orðið fyrir dásamleg'ri reynslu
meS hjálp trúar sinnar og þessa
ímyndaSa, sjálfsefjandi hugtaks
„dultrú“, vegna þess aS innlifunar-
hæfileiki sálar vorrar er takmarka-
laus og hugmyndaflug sömuleiSis.
Þessi hæfni getur einnig veriS mjög
sannfærándi. ÞaS er skylda vor aS
kunna að greina hugmyndaflug frá
raunveruleika þvi að óraunveruleg-
ir atburðir hafa yfir sér sama falska
blæ og fagrir draumar eSa ofsjónir.
Þetta getur orðið örlagaríkt ef t.d.
heil þjóð trúir slíku og breytir
eins og slikt væri algildur sann-
leikur. Og hvers virði verður það,
ef menn kynnu að vakna viS vond-
an draum? Ég vil leggja áherzlu á
hina rcmnsæju lifsskoðun sem mót-
vægi gegn hinni trúarlegu. Ég álít
hana stórkostlega og hugmynda-
ríka. Hin einfalda og snjalla hugs-
un, sem býr baki við altilveruna
er innbyrðisbarátta mátsetninganna
Án þess mundi öll tilveran — lífið
og mennirnir — vera óhugsandi.
Við mennirnir höfum nóg tæki-
færi í lífi okkar til að athuga og
hagnýta þetta lögmál og hina misk-
unnarlausu en þó réttlátu kenni-
setningu, sem af því leiðir „Eins
og maðurinn sáir, mun hann upp-
skera“ og við getum dregið lær-
dóma af þvi. Hver maður getur þá
að öðru jöfnu ráðið hvort hinna
tveggja afla i honum sjálfum stjórn-
ar lífi hans, hiS neikvæða eð já-
kvæða m. ö. o. hið illa eða hið
góða.
Veljum við hið síðarnefnda göng-
um við i lið með hinum skapandi
og uppbyggjandi öflum lífsins, sem
ekk iþekkja fals og' svik. Lifið seg-
ir: „Ég mun ekki einungis gefa
þér sálræn, andleg og jarðnesk
auðævi, sem þig hefur aldrei
dreymt um, heldur einnig hug-
rekki og' styrk til aS sigra alla erfið
leika. Þá hefur þú lika möguleilca
til að skapa á jörðu starfsamt
mannlíf, tilveru þa rsem hugmynd-
in um kærleika til náungans verður
sýnd í verki vegna trúar á lifið
og mennina, en ekki fyrir trú á
Guð, eins og Jesús kenndi hana.“
En veljir þú hið fyrrnefnda geng-
ur þú í lið meS hinum eyðandi
öflum, sem þó eki þekkja heldur
fals og svik. Þau munu fylgja þér
dyggilega í leit þinni eftir fé og
völdum og breyta tilveru þinni í
kvalastað, þar sem þú umlykst
kulda og bölvun einmanaleikans.
Svona einfalt, skýrt og réttlátt
er það sem lífið segir — og þar
a ðauki laust við alla dultrú og
töfra.
Þú veizt vel, hvert þú fórst í sumarleyfinu þínu, en hvað um peningana
þína?