Úrval - 01.06.1970, Qupperneq 3
ÞEGAR þetta er ritað stendur orra-
hríð kosninganna sem hæst. Skyndi-
lega er hinn óbreytti borgari orð-
inn mikilsverður, yjir hann dynja
kosningablöð og bœklingar og meira
að segja einkabréf, sem auðvitað eru
framleidd í stórum stíl. Þegar hlýtt
er á málflutning frambjóðenda,
skýtur ósjálfrátt þeirri hugsun upp,
að enginn þeirra segi í raun og veru
satt og rétt frá, heldur hagrœði hver
sem betur getur sannleikanum í
þeirri von, að hann falli kjósandan-
um í geð og hann láti ánetjast. í
þessu sambandi er vert að minnast
á hugmynd, sem fram kom í einu
dagblaðanna ekki alls fyrir löngu.
Hún var á þá leið, að stofnuð yrðu
eins konar kjósendasamtök, sem
störfuðu á svipaðan hátt og neyt-
endasamtök. Þessi hugsanlegu sam-
tök ættu að hafa það hlutverk með
höndum að rannsaka, hvað sé rétt
og hvað ekki í opinberum málflutn-
ingi stjórnmálamanna. Þessi hug-
mynd kann að koma spánskt fyrir
sjónir, en við nánari athugun hefur
hún margt sér til ágætis. Hún gœti
stuðlað að því, að menn hættu að
haga seglum eftir vindi og hagræða
sannleikanum að eigin vild. Þegar
búast má við, að algerlega hlutlaus
stofnun rannsaki deilumál og birti
síðan skýlausar niðurstöður, þá
verður erfiðara um vik að segja
hálfan sannleika eða hreinlega ósatt.
Vel má vera, að hér sé um ófram-
kvœmanlega hugsjón að rœða;
draum, sem aldrei verður að veru-
leika. En það kostar ekkert að drepa
á þetta og fjalla lítillega um það —
einmitt þegar sem mestu moldviðri
áróðurs og ofstœkis hefur verið
þyrlað upp.
AÐ VANDA ER reynt eftir mœtti í
þessu hefti að spegla hin helztu mál,
sem efst eru á baugi erlendis og
hafa verið að undanförnu. Við birt-
um grein, þar sem fjallað er um
geimferðir almennt og þá sérstak-
lega hvort gagn sé að þeim eða ekki.
Margir mætir menn, eins og til
dœmis heimspekingurinn Arnold
Toynbee, hafa gagnrýnt harðlega þá
stefnu stórvelda að ausa fé i geim-
ferðir á sama tíma og stór hluti
mannkyns líður skort. Á móti er
—— — *\
Kemur út mánaðarlega. Útgefandi: Hilmir hí„
„ Skipholti 33, Reykjavík, pósthólf 533, sími 35320.
Ritstjóri: Gylfi Gröndai. Aígreiðsla: Blaðadrelf-
- - > js£, -• ing, Skipholti 33, sími 36720. Verð árgangs krónui
500.00. í lausasölu krónur 50.00 heftið. Prentun og bókband: Hilmlr hX.
Myndamót: Rafgraf h.f.
y
1