Úrval - 01.06.1970, Blaðsíða 10
8
ÚRVAL
til lífseig munnmæla-
saga, að vofuvagn, dreg-
inn af hauslausum hest-
um, sem stjórnað er af
hauslausri drottning-
unni, æði eftir þjóðveg-
unum í áttina til Blick-
ling Hall um miðnætti
einu sinni á ári, þ.e.a.s.
sama mánaðardaginn og
hún dó. Sagt er, að enn
ein af drottningum Hin-
riks 8., Catherine af
Aragon, sé á reiki í sal
einum í Kimboltonkast-
ala í Huntingdonshire.
Börn Hinriks 8. eru
einnig meðal hinna kon-
ungbornu vofa. Vofa
Elísabetar drottningar
hefur sézt í bókaher-
berginu í Windsorkast-
ala, og María drottning,
systir hennar, er á reiki
á hinu forna setri, Saws-
ton Hall, í Sambridges-
hire, en eigendur þess
skutu yfir hana skjól-
húsi á óeirðatímum
þeim, sem fylgdu dauða
Játvarðs 6., bróður
hennar.
Þar bárust henni þær
fréttir, að þeir, sem
studdu tilkall lafði Jane
Grey til krúnunnar,
hefðu komizt á snoðir
um felustaðinn, og hún
flúði að nóttu til. Enn
er hægt að líta á her-
bergið, sem hún dvald-
ist í, og vofa hennar
hefur ekki aðeins sézt
þar, heldur hefur hún
heyrzt vera að leika á
spínet kvöldið áður en
hún flúði.
Vofur mikilla stjórn-
málamanna virðast yf-
irleitt sætta sig vel við
að láta veröld þessa
sigla sinn sjó. Ein und-
antekning er vofa
Benjamíns Disraeli, for-
sætisráðherra á dögum
Viktoríu drottningar, en
hann var henni hollvin-
ur og ráðgjafi. Vofan
sást dag einn fyrir
skömmu síðan í Hug-
henden Manor, hinu
gamla heimili hans í
Buckingshamshire. Dis-
raeli sást standa þar
fyrir neðan kj allarastig-
ann með skjalabunka í
hendi sér. Seinna sást
hann einnig á einni af
efri hæðum hússins.
Þessar þöglu, óáþreif-
anlegu vofur munu
vissulega líða um forna
sitgu á dimmum vetrar-
nóttum, þegar líður að
endalokum þessa árs,
hverjar svo sem þær
eru og hvar sem þær
kunna að dvelja. Sjáir
þú ekki neitt, kann það
ef til vill að vera vegna
þess, að þú sért einn
þeirra, sem „aldrei sjá
neitt“, því að það er
hugrakkur maður, sem
lýsir því skorinort yfir,
að vofur séu ekki til...
einkum þarf hugrekki
til slíks við arineldinn
um jólaleytið!
Útlendingur einn í Dublin steig upp í leigubil og leit bænaraugum á
bilst jórann:
„Éig ekki hafa góð enska,“ sagði hann á mjög bjöguðu máli, „ og ég
hafa týna orðið.“
„Þér eigið við, að þér hafið gley.mt nafninu á götunni, sem þér viljið
fara til, er það ekki?“ spurði bílstjórinn,
Útlendingurinn kinkaði ákaft kolli, barði svo í hausinn á sér, eins og
hann væri að reyna að losa um glataða orðið. Loks brosti hann og sagði:
„Fara með mig til eiginkona Kóngsstræti."
Bílstjórinn ók honum þá tafarlaust til Drottninigarstrætis.