Úrval - 01.06.1970, Side 29

Úrval - 01.06.1970, Side 29
ÞEGAR TVÖ SKÁLD ELSKAST 27 Það var erfitt fyrir ungan Englend- ing af háum stigum og ómögulegt fyrir unga, enska yfirstéttarstúlku að vinna fyrir sér á þessum árum. Þau þurftu að leita til föður eða annarra ættmenna og þiggja allan lífeyri úr þeirra hendi. Um þetta farast Elísaþet svo orð í skrifum sínum: „Sko, allir . . . allir bræður mínir voru neyddir til undirgefni vegna líkamlegra þarfa, að minnsta kosti undirgefni á yfirborðinu, vegna hinna auðvirðilegustu þarfar, þarf- arinnar á lífsviðurværi.“ Þetta var fjölskylduandrúmsloft- ið, sem heilsulausa, unga konan hrærðist í. Faðir hennar var að heiman allan daginn við viðskipta- störf í helzta kaupsýsluhverfi Lundúna. Og því naut hún þó and- legs frelsis mestallan daginn. Uppi á bókahillunum í herbergi hennar voru brjóstmyndir af mikilmennum, og á veggjunum héngu myndir af skjáldjöfrum þess tíma, þeim Car- lyle, Wordsworth, Tennyson og Ró- bert Browning. Elísabet átti lítinn hund, sem henni þótti vænt um. Einu vand- ræðin voru þau, að það var alltaf verið að stela honum. Hún las, og hún skrifaði. Þegar hún var lítil og þau áttu enn heima uppi í sveit, eyddi hún miklum tíma í að rækta hvítar rós- ir og lesa verk þeirra Voltaire, Thomas Paine, Goethe og Rousse- au. Faðir hennar hafði bannað henni að opna bækur Gibbons eða skáld- söguna Tom Jones. Hann grunaði auðsýnilega ekki, að verk þau, sem hann leyfði henni að lesa, voru að minnsta kosti eins hættuleg. Hún lagði stund á grísku hjá blindum fræðimanni, Hugh Stuart Boyd að nafni, sem varð átrúnaðargoð henn- ar og trúnaðarmaður ævilangt. Hún var byrjuð að skrifa harmleiki á frönsku og ensku tíu ára að aldri. Þrettán ára gömul orti hún hetju- ljóðið „Orrustan á Maraþonvöll- um“. Faðir hennar var mjög stolt- ur af því og lét prenta 50 eintök af kvæðinu. Og þegar hún var 22 ára, var gefið út ljóðasafn eftir hana, er bar heitið „Ritgerð um hugann og fleiri ljóð“. Upp frá því hélt hún stöðugt áfram að yrkja ljóð. Arið 1844 voru gefnar út tvær ljóðabækur eftir hana. Þá var hún 38 ára gömul. í annarri þeirra var ljóðið „Hróp barnanna“, sem fjall- aði um eymd þá, sem hlauzt af barnaþrælkuninni, einni helztu meinsemd Englands þess tíma. Það var álitið, að það væri meðal ann- ars þessu ljóði að þakka, að þeirri hreyfingu óx svo mjög ásmegin, er kom því til leiðar, að barnavinnu- lögin voru endurskoðuð. Þessar tvær ljóðabækur gerðu heilsulausu konuna í Wimpolestræti fræga. Edgar Allan Poe sagði, að Ijóðið „Hróp barnanna" væri þrungið „ólgandi krafti, er ekkert fengi bugað, hryllingi, sem er svo upphafinn í einfaldleika sínum, að Dante sjálfur hefði mátt vera stolt- ur af slíku“. Gagnrýnendur hrós- uðu henni og sögðu, að hún væri sannkallaður snillingur, er væri al- gerlega sérstæður. Nú var henni skipað á bekk með þeim ljóðskáld- um og sagnaskáldum, sem hún hafði fyrir augunum á degi hverj-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.