Úrval - 01.06.1970, Side 59

Úrval - 01.06.1970, Side 59
GERÐI FYRSTU VEÐURSPÁNA HÉRLENDIS 57 á landi höfðu fáir áhuga á hafísn- um, hann var frekar meinlítill um þær mundir. Þá var það, að Jón gekkst fyrir endurbótum í þessu máli, og kom því til leiðar, að könnunarflugvélar á ferð fyrir norðan land gerðu ís- athuganir, stundum alllangt norð- ur í haf. Þessu framtaki hans má að miklu leyti þakka, að samfelldar hafísathuganir eru nú til frá Græn- landssundi frá ársbyrjun 1953, en skýrslu um ísinn birti hann árlega í Jökli frá þeim tíma til æviloka. Hér hefir verið gefið nokkurt yf- irlit um rannsóknarstörf Jóns. Nokkuð hefir einnig verið getið um félagsstörf hans í þessu sam- bandi, en langt er þó frá því, að þar með sé allt talið. Árið 1927 var Jón kjörinn í milliþinganefnd til undir- búnings útvarpsrekstrar. Var hann þar fulltrúi félags útvarpsnotenda, og var hann kjörinn. ritari nefndar- innar. Hún starfaði einnig 1928, og lagði fram álit, sem varð grund- völlur laga um útvarpsrekstur rík- isins. Árið 1932 var hann kosinn í útvarpsráð og átti sæti í því nær óslitið til 1946, en formaður þess var hann 1939—1943. Þetta starf veitti honum að sjálfsögðu víðtækan rétt til að móta dagskrá og starfsemi stofnunai’innar, enda var hann vel til þess fallinn. Hann tók á þessum árum allmikinn þátt í flutningi dag- skrárinnar, meðal annars í þáttun- um „Um daginn og veginn“, sem lengi var eitt vinsælasta útvarps- efnið. Þótt öll sú vinna, sem hér hefir verið upp talinn, mundi reynast flestum alldrjúgt ævistarf, verður ekki hið sama sagt um Jón, því enn er ótalinn einn merkasti hluti verKa hans, ritstörfin. Þau ná yfir hin ólíkustu efni, blaðagreinar um ým- isleg áhugamál, mest þó í sambandi við útvarpið, þýddar skáldsögur og fleira. En mest ber þó á verkum, er snerta náttúruvísindi á einn eða annan hátt, bæði frumsamdar rit- gerðir um eigin athuganir, og verk annarra, sem hann ýmist þýddi, sá um útgáfu á eða hvort tveggja. Úr fyrri flokknum má nefna „Temperature Variations in Ice- land“ í Geografiska Annaler, þar sem hann benti á hitabreytingar þær, sem orðið hefðu síðan reglu- bundnar hitamælingar hófust, sér- staklega þó hitastökkið, sem varð eftir 1920, og kannaði, hve stórar þessar sveiflur væru. Meginefni þessara ritgerðar birtist í Náttúru- fræðingnum árið 1950. Af öðrum greinum má nefna „Introduction to Sólheimajökull“, „Geislamagn og sólskin", „Um loftslagsbreytingar á íslandi og Grænlandi síðan á land- námsöld“. Auk þessara verka skrifaði hann að sjálfsögðu mjög margar skýrsl- ur um jöklamælingar sínar og haf- ísathuganir, flestar hafa birzt í tímaritinu Jökli um nærri tveggja áratuga skeið. Hinn flokkurinn er líklega nokkru fyrirferðarmeiri, en eftirtektarvert er, hve Jón hefir þar valið verk sín af mikilli vandvirkni. Flest ritin í honum eru verk, sem almenningur átti ekki greiðan aðgang að, vegna þess, að þau voru uppseld, á erlend- u.m málum eða jafnvel ennþá í handriti. Þau fjalla yfirleitt um
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.