Úrval - 01.06.1970, Page 60

Úrval - 01.06.1970, Page 60
58 ÚRVAL náttúrufræði og ferðalög, oftast um íslenzk efni eða kannanir heim- skautalanda. Þessar bækur urðu al- menningseign fyrir atbeina Jóns og annarra merkra manna. Sumar þeirra mörkuðu tímamót í íslenzkri tungu. í flokki þessara bóka má nefna Ferðabók Þorvaldar Thor- oddsens, Ferðabók Sveins Pálssonar, er hann bió til prentunar og þýddi að miklu leyti ásamt Pálma Hann- essyni og Steindóri Steindórssyni, safnrit þeirra Pálma: „Hrakningar og heiðavegir*. ferðasaga William Lord Watts, „Norður yfir Vatna- iökul“. og fleiri. En Jóni var vel ljóst, að útgáfu fornra náttúrufræðirita var síður en svo lokið, enn liggia í lítt aðgengi- logum handritum veðurbækur frá átiándu öld, eftir Lievog, Svein Pálsson og fleiri, og á þetta benti Jón í nokkrum greinum í Veðrinu. Að vísu eiga þessi rit lít.ið erindi til nlmennings í frummynd sinni. En þau gætu þó varpað nokkru ljósi á veðurfarsbreytingar síðustu alda, ef úr þeim er unnið á vísindalegan hátt. Fyrsta skrefið til að svo megi verða er þó að prenta þau, og vanda vel undirbúnings þess verks. Vísindaritgerðir Jóns voru marg- ar og merkar, eins og áður er get- ið. En þær koma þeim á óvart, er búast við slíkum ritum á þunglama- iegu máli, vel krydduðu með stærð- fræðilíkingum. Að vísu skirrist Jón ekki við að nota þær, ef rík ásfæða er til. En þær eru þó fáar og einfaldar, en málfar hans ljóst og lifandi. Og jafnan tekst honum bezt til, þegar hann lýsir náttúrunni með orðum, þegar náttúruunnandinn fremur en vísindamaðurinn stjórn- ar pennanum og hefir óbundnar hendur til að lýsa því sem fyrir augu ber, sýna lesandanum þau öfl, er að baki náttúruatburðanna liggja. Þá veitist honum létt að skýra rás atburðanna í ljósu, tæru, þrótt- miklu máli. Jón kvæntist Kristínu Vigfús- dóttir frá Vatnsdalshólum árið 1921, en hún lézt 1946. Þau eignuðust sex börn, Biörgu, Sverri, Eyþór, Ingi- björgu, Eirík og Kristínu. Ingibjörg dó ung, en Sverrir flugstjóri fórst, í flugslysi við Norðfjörð í janúar 1966. Síðari kona hans var Ada V. Ágot, f. Holst. Þau slitu samvistum. Aldrei átti ég þess kost að kynn- ast Jóni á leiðangursferðum. En þeir sem til þekkja, segja hann hafa ver- ið frábæran leiðangursstióra, hag- sýnan og örvandi, fór að öllu með gát, en þrautseigur, ef með þurfti. Og þessu líkur var hann einnig við dagleg skyldustörf. Jón var oft þungt haldinn síðustu mánuðina, sem hann lifði. Þá mun hugur flest.ra snúast að því, sem hverjum manni er nánast, fjölskyldu og einkavinum. Jóni var þó svo far- ið, að hann sinnti einnig þeim mál- um, er hann hafði helgað langt ævi- starf, að þessu sinni til að tryggja eftir mætti, að þar tækju aðrir upp þráðinn, er hann varð frá að hverfa. Hann lézt 6. marz 1968 og var jarð- settur að fæðingarstað sinum, Þing- eyrum, nokkru síðar. Nú verða næstu kynslóðir ís- lenzkra náttúrufræðinga að taka við vísindagreinum þeim, er hann starf- aði að, bæta við þær og skila áfram næsta áfangann.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.