Úrval - 01.06.1970, Page 67
65
Veitingáhúsaeígendur ættu a8
fara að vara sig. Nader er nú orð-
inn næstum goðsagnakenndur
krossfari í baráttunni fyrir mál-
stað neytandans. Honum væri trú-
andi til þess að nota flugu sem
nægilega ástæðu til þess að láta
hefja rannsókn á vegum þingskip-
aðrar nefndar. Og hann gæti líka
komið slíku í kring. Sem sjálfskip-
aður og ólaunaður verjandi hags-
muna 203 milljóna handarískra
neytenda hefur hann barizt fyrir
ótal málefnum. Honum hefur tek-
izt að fá iðnjöfrana til þess að end-
urmeta ábyrgðina, sem á þeim hvil-
ir. Og honum hefur tekizt að skapa
nýtt andrúmsloft þrátt fyrir þung-
an róður, og einkennist það af því,
að nú er miklu meira tillit tekið
til hagsmuna og álits neytandans
en áður tíðkaðist.
Hugmyndir hans hafa hlotið
hljómgrunn á furðulegum stöðum.
í desembermánuði síðastliðnum
gekk Henry Ford II. lengra en
nokkur annar framkvæmdastjóri í
bifreiðaiðnaðinum hefur nokkru
sinni gert, hvað snertir viðurkenn-
ingu á því, að bifreiðaiðnaðurinn sé
ábyrgur fyrir loftmengun. Og hann
bað og jafnvel hvatti ríkisstjórnina
til þess að gera sitt ýtrasta til þess
að ráða bót á þessu ófremdar-
ástandi. Ford sagði, að bifreiða-
framleiðendurnir yrðu að koma
fram með ökutæki, sem gæfu frá
sér „lítið sem ekkert mengað út-
blástursloft". Ford nefndi ekki
Ralph Nader á nafn, en það var
heldur ekki nauðsynlegt. Nader er
alþekktur sem harður gagnrýnandi
bifreiðaiðnaðarins, og hefur hann
meðal annars gagnrýnt hann fyrir
mengun andrúmsloftsins.
Það var að miklu leyti vegna
áhrifa Naders, að General Motors
hættu við framleiðslu Corvair-bif-
reiðarinnar í fyrra. Salan á „Cor-
vair“ hrapaði niður úr öllu valdi,
eftir að Nader lýsti því yfir, að
bíllinn væri stórhættulegur. Þetta
gerði hann í metsölubók sinni
„Hættulegur á hvaða hraða sem
er“. Útkoma þessarar bókar og síð-
ari ræður Naders, greinar og heim-
sóknir í þingið urðu einnig til þess,
að Flutningamálaráðuneytið setti
strangari öryggisreglur um bifreið-
ir og hjólbarðaframleiðslu.
Nader er bæði lögfræðingur, upp-
ljóstrari og krossfari í senn. Það er
að miklu leyti fyrir áhrif frá hon-
um, að nú hafa verið sett sex þýð-
ingarmikil ríkislög til verndar
hagsmunum neytenda. Þar er um
að ræða umferðar- og bifreiðaör-
yggislögin frá 1966, lög frá 1967 um
ómengað kjöt, öryggislög frá 1968
varðandi jarðgasleiðslur, lög frá
1968 um geislunareftirlit vegna
heilbrigði og öryggi, lög frá 1968
um ómengaðar alifuglaafurðir og
ríkislög frá 1969 um heilbrigði og
öryggi kolanámumanna (sem hafa
að geyma varnarráðstafanir gegn
„svartlungnasjúkdómum").
Hann var einnig fyrstur til þess
að ásaka framleiðendur niðursoð-
innar barnafæðu um að stofna heilsu
ungbarna í voða með því að nota
monosodium glutamate í niður-
suðuvörurnar, en það er bragðbæt-
andi efni, sem læknavísindin hafa
nú sýnt fram á, að geti valdið
heilaskemmdum í sumum dýrateg-