Úrval - 01.06.1970, Síða 69
DJARFASTI NEYTANDINN í BANDARÍKJUNUM
67
berra stofnana, nefnda og ráða að
hefja störf í þeim atvinnugreinum,
sem þeir áttu að hafa eftirlit með,
meðan þeir voru opinberir starfs-
menn.
„STRANDHÖGGSMENN
NADERS“
Undanfarin tvö sumur hefur Na-
der leitað hjálpar námsmanna í
sumarleyfum til framkvæmda á
þessu sviði. Hann þarfnast kross-
fara sér til aðstoðar í krossferðum
sínum. Þeir hafa sýnt slíkan geysi-
legan áhuga á að rannsaka starf-
semi skriffinnskubáknsins í öllum
þess myndum og afbrigðum, að þeir
hafa hlotið heitið „strandhöggs-
menn Naders“. Árið 1968 voru
strandhöggsmennirnir aðeins 7 að
tölu, en í fyrra urðu þeir 105. Na-
der og hinir ötulu strandhöggsmenn
hans ásaka stjórnyfirvöld yfirleitt
um að hafa brotið hin þriggja ára
gömlu lög um frjálsan aðgang að
upplýsingum, brotið þau á „kerfis-
bundinn hátt að yfirlögðu ráði“. En
lög þessi eiga að veita almenningi
greiðari aðgang að ýmsum upplýs-
ingum á vegum ríkisvaldsins. Tveir
strandhöggsmenn hófu málsókn
gegn Flugmálaráði ríkisins við rík-
isdómstól í nóvember til þess að
neyða ráðið til að birta niðurstöð-
ur af rannsókn vegna kvartana
flugfarþega.
Hin einmanalega barátta Naders
er að vísu þýðingarmikil, en inn-
blástur sá og hvatning sú, sem hann
veitir ungum Bandaríkjamönnum
kunna að reynast ein þýðingarmik-
il fyrir Bandaríkin. En Nader nýt-
ur ekki einskoraðra vinsælda vegna
viðleitni sinnar. Leigubílstjórar
hella sér til dæmis stundum yfir
hann, vegna þess að nú verða þeir
að greiða fyrir öryggisbelti og ann-
an lögákveðnan öryggisútbúnað í
bíla sína vegna baráttu Naders.
Hinir nýju, róttæku byltingarsegg-
ir fordæma hann, vegna þess að
hann vill gera endurbætur á hag-
kerfinu fremur en að koma því
fyrir kattarnef. Kaupsýslumenn
kvarta yfir því, að hann sé bara
hávaðaseggur, sem vilji auglýsa
sig, og að hann sé oft svo ofboðs-
lega viss um, að hann einn hafi á
réttu að standa, að slíkt nálgist al-
geran hroka. En hvert álit sem
ýmsir kaupsýslumenn kunna að
hafa á aðferðum Naders, þá hrósa
þeir honum samt fyrir það, sem
hann hefur afrekað, og viðurkenna,
að hann sé þýðingarmikill og oft
afar nauðsynlegur gagnrýnandi.
Nixon forseti hefur nú orðið við
þeim kröfum, sem Nader og ýmsir
aðrirv er vinna að hagsmunamálum
neytenda, hafa gert um alllanga
hríð. Hann hefur sem sagt lagt til,
að samþykkt verði lög, sem leyfi
neytendum að bindast samtökum
um „sameiginlegan málarekstur“ í
skaðabótamálum í ríkisréttum gegn
framleiðendum eða kaupmönnum,
sem gerzt hafa brotlegir við neyt-
edur á einhvern hátt. Og verði þeir
dæmdir sekir fyrir svik gegn neyt-
endum, verða þeir ef til vill að
greiða allan málflutningskostnað og
greiða öllum þeim neytendum
skaðabætur, sem aðild eiga að hinni
„sameiginlegu málsókn". Forsetinn
hefur þegar lagt lagafrumvarp um
„réttindi kaupenda" fyrir þingið.