Úrval - 01.06.1970, Page 83
HVIRFILVINDURINN CAMILLA
81
bliki skellti stormurinn einum
veggnum flötum og slökkti á ljós-
kerinu. Annar veggur tók að hreyf-
ast svolítið og riða síðan til. Charlie
Hill reyndi að styðja hann, en hann
hrundi yfir hann og meiddi hann í
bakinu. Húsið hristist og skalf. Það
hafði færzt 25 fet af grunninum.
Veröldin virtist öll vera að gliðna í
sundur.
„Við skulum reisa dýnuna upp!“
hrópaði John til föður síns. „Við
skulum mynda þannig svolítið skýli
gegn storminum. Látið börnin undir
hana. Við getum haldið dýnunni
uppi með höfði og öxlum!“
Stærri börnin lögðust endilöng á
gólfið, en mnini börnin ofan á þau.
Og fullorðna fólkið beygði sig svo
yfir börnin. Gólfið tók að hallast.
Kassinn með kettlingunum rann of-
an af hillu og hvarf. Læðan hentist
ofan af bókaskáp, sem rann til, og
hvarf líka. Hundurinn hnipraði sig
saman skjálfandi og opnaði ekki
augun. Nú gliðnaði þriðji veggurinn
í sundur. Nú tók vatn að renna eftir
hallandi gólfinu. John greip í hurð,
sem var enn föst á hjörum við vegg-
skáp. „Ef gólfið hrynur,“ hrópaði
hann til föður síns, „skulum við
setja börnin upp á þessa hurð.“
Á sama augnabliki dró örlítið úr
storminum og vatnið hækkaði nú
ekki lengur. Síðan fór það að lækka.
Versti ofsi fellibylsins Camillu var
genginn hjá. Koshakfjölskyldan og
kunningjar hennar höfðu lifað
ósköpin af.
íbúar Gulfport jóru aS streyma
aftur til heimila sinna í dögun.
Á vegi þeirra urSu fjölmörg lík, því
að rúmlega 130 menn, konur og
börn létu lífið í féllbylnum í strand-
héruðum Mississippifylkis. Á strönd-
inni og víða á vegunum lágu hræ
af köttum, hundum og nautgripum.
Fatadruslur héngu í þeim trjám,
sem uppistandandi voru, og niður-
rifnar rafmagnslínur hringuðu sig
yfir vegina sem svartar spaghetti-
lengjur.
Fólkið, sem sneri til heimila sinna,
var þögult, og það var enginn asi á
því. Það stóð þarna sem lamað af
því, sem fyrir augu þeirra bar. Það
gat varla trúað sínum eigin augum.
„Hvað eigum við að taka til bragðs?“
spurði það. „Hvert eigum við að
halda?"
Er hér var komið sögu, höfðu alls
konar hjálparsamtök á svœði þessu
komið íbúum hinna hrœðilega út-
leikna strandhéraða til hjálpar.
Reyndar mátti segja, að allir íbúar
Bandaríkjanna hafi komið þeim til
hjálpar. Fyrir dögun var Þjóðvarð-
lið Mississippifylkis og ýmsir flokk-
ar landvarna komnir á vettvang til
þess að stjórna umferð, verja eigur
manna, koma upp samgöngumið-
stöðvum, ryðja burt bráki og flytja
heimilislaust fólk í vörubílum og
langferðabílum tli flóttamannamið-
stöðva. Er klukkan var orðin 10,
voru matvagnar Hjálpræðishersins
og sjálfboðaliðar og starfsmenn
Rauða krossins komnir hvarvetna á
vettvang og byrjað var að útdeila
heitum drykkjum, matvœlum, fatn-
aði og rúmfötum.
Frá hundruðum bæja og borga um
gervallt landið bárust gjafir, sem
námu mörgum milljónum dollara.
Búsáhöld, hjúkrunargögn og lyf
streymdu að með flugvélum, járn-