Úrval - 01.06.1970, Page 92
90
ÚRVAL
hann Johnson. „Ú'g veit ekki, hvað
þeir vilja mér núna.“
„Það er erfitt að nema staðar,
þegar maður er á annað borð tek-
inn til að flýja, “ sagði Al. „En þú
verður sjálfur að taka ákvörðun."
„Eg ætla að vera kyrr,‘ sagði
Willy. „En viltu hringja í lögreglu-
þjóninn og spyrja?“
A1 hringdi í lögregluna og lofaði
henni, að hann skyldi koma með
Willy á stöðina strax sama kvöld.
Honum var sagt, að Willy hefði
brotið skilmálana, sem snertu skil-
orðsbundna dóminn, sem hann
hafði fengið. Hann hafði ekki mætt
á lögreglustöðinni á tilskildum
tíma. En Willy sór og sárt við lagði,
að hann hefði aldrei fengið neina
slíka tilkynningu um að mæta. A1
hringdi á nokkra staði, og hann
komst að því, að bréf lögreglunnar,
sem hafði að geyma þessa tilkynn-
ingu, hafði ekki verið sent heim til
Willys, heldur á rangan stað.
Willy var settur í fangaklefa,
þegar þeir komu á lögreglustöðina
um kvöldið. En Johnson yfirgaf
hann ekki. „Eg stend alltaf með
krökkunum mínum, þegar þeir
hafa ekki gerzt sekir um neinar
yfirsjónir," seeir hann. ,,0g einu
sinni hafði Willv þó á réttu að
standa.“ A1 dvaldi með honum í
fangaklefanum um nóttina. Málinu
var svo vísað frá í réttarsalnum
næsta morgun.
Willv var sem rinelaður. Það var
eins oe hann vissi ekki, hvað hann
ætti að halda eða gera. En honum
virtist samt skiliast, að Johnson lét
sér í raun og veru annt um hann.
A1 varð var við þessa breytingu á
afstöðu Willys. Og nú fann hann,
að hið rétta augnablik var komið
til þess að reyna að telja um fyrir
honum og fá hann til þess að hefja
nýtt líf.
„Hver stendur svo sem með þér,
vinur? Hvaða baktryggingu hef-
urðu?“ spurði hann Willy. „Óaldar-
flokkinn? Er það framtíðarstarfið
að þínum dómi? Hvað verðurðu
eftir þrjú til fjögur ár? Ræfill?
Róni? Eiturlyfjaneytandi? Fangels-
ismatur? Þú ættir að fara að hugsa
um mann „Númer eitt“, sko, þig
sjálfan. Farðu að hugsa um skóla-
menntun, atvinnu, líf, sem hefur
eitthvert innihald. Og trúðu mér,
þér tekst það, vinur!“
Og Willy tókst það. Hann fór á
starfsþjálfunarnámskeið og varð
efstur. Hann hóf nám í kvöldskóla
K.F.U.M. og tók þaðan framhalds-
deildargagnfræðapróf. Svo fékk
hann starf hjá stóru vátryggingar-
félagi. Nú er hann giftur og á tvö
börn. Hann er bílasölumaður og
hefur góðar tekjur. Hann sér vel
fyrir fjölskyldunni. Og nú er hann
farinn að reyna að tala um fyrir
unglingunum í Lawndale, líkt og
A1 talaði eitt sinn um fyrir honum.
..ÞAÐ ERU EKKI ALLIR
ÞJÓFAR“
Síðustu 11 árin hefur Albert E.
Johnson hiáloað hundruðum ung-
linga, sem svipað er ástatt fyrir og
var fvrir Willy. Honum hefur tek-
izt að vísa þeim veginn upp úr því
kviksyndi eymdar. örvæntingar og
glæpa, sem er að finna í Lawndale-
hverfinu. Á þessu 11 fermílna svæði
búa 280.000 manns, og um fjórðung-