Úrval - 01.06.1970, Síða 94
92
ÚRVAL
/---------------------------------N
HEXMIR HANNE.SSON,
LÖGFRÆÐINGUR
Heimir Hannesson er fæddur
á Aikureyri 10. júlí 1936. For-
eldrar hans eru Hannes J.
Magnússon, sikólastjóri, og Sól-
veig Einarsdóttir. Hann lauk
stúdentsprófi frá Menntaskól-
anum á Akureyri 1955 og lög-
fræðiprófi frá Háskóla Islands
1962. Hann var blaðaimaður við
Timann frá haustinu 1955 og
starfaði meira og minna að
blaðamennisku til ársloka 1960.
Hann var starifsmaður Seðla-
banka íslands um skeið 1958 og
starfsmaður Framsóknar-
flokksins árið eftir. Á miðju ári
1962 gerðist hann lögfræðingur
Seðlabanka Islands o.g hefur
gegnt þvi starfi síðan. Hann
hefur igegnt ýmsum trúnaðar-
störfum, t.d. verið formaður
Varðbergs. Heimir er stofnandi
og annar af ritstjórum tima-
ritsins ..Icelandie Review".
Hann er ikvæntur Birnu Björns-
dóttiUr.
fyrir sér, meðan á máltíðinni stóð,
og spurði sjálfan sig þessarar spurn-
ingar: „Hvað ætlar hún sér? Hver
er tilgangur hennar?“ Hann hafði
aldrei þekkt neina manneskju áð-
ur, sem reyndi ekki að hafa eitt-
hvað út úr einhverjum á einhvern
hótt. Þegar komið var að eftirrétt-
inum, var hann orðinn sannfærður
um, að einhver af karlmönnunum
mundi fara fram á peningalán að
kvöldverði loknum. En svo varð þó
ekki. Næstu mánuðina hélt hann
áfram að njóta gestrisni fjölskyld-
unnar, en samt hafði enginn beðið
hann um neitt ennþá. Hann botn-
aði ekkert í þessu.
„Það eru ekki allir þjófar," sagði
Annette við hann. Það eru ekki all-
ir, sem reyna bara að hafa gott af
manni á einhvern hátt. Þú ert bara
að berjast við sjálfan þig. Þú ert
þinn eiginn mótstöðumaður."
Hann fór að velta því fyrir sér,
hvort hún hefði kannske rétt fyrir
sér og hvort honum þýddi nokkuð
að söðla um og reyna að byrja nýtt
líf. í drykkjuveizlu heima í íbúð
sinni eitt laugardagskvöldið laust
þessari spurningu skyndilega niður
í huga hans: Er lífið þá ekki annaS
en þetta . . . að fá útborgað og
drekka svo allt kaupið upp? Hann
læddist burt úr veizlunni, svo að
lítið bar á. Svo stóð hann svolitla
stund úti á götunni, horfði inn um
gluggann og virti fyrir sér fólkið
inni í stofunni. Hann gerði sér grein
fyrir því, að það var öllum sama
þarna inni, hvort hann yrði kyrr
eða færi burt.
En Annette lét sér ekki á sama
standa um hann. Og nú vissi Al,