Úrval - 01.06.1970, Side 104

Úrval - 01.06.1970, Side 104
102 ÚRVAL útskýrði fyrir þeim við hádegis- verðinn, hvað hann væri að reyna að gera í Lawndalehverfinu. „Vand- inn er að ná til unga fólksins,“ sagði hann. „Það mun stjórna þessu landi eftir 15 til 20 ár, og ég trúi á það. í Vesturbænum hef ég rekizt á margra unglinga, sem eru fáfróðir en mjög vel gefnir. Við verðum að finna þessa hæfileika, viðurkenna þá og notfæra okkur þá.“ Það vildi svo vel til, að afstaða Als var jafnframt afstaða félagsins í þessu efni. James A. Cook, sem var þá forstjóri Illinois Bell Telep- hone-félagsins og formaður borgar- nefndarinnar, sem fjallaði um af- nám aðskilnaðarstefnu kynflokk- anna í húsnæðismálum, hafði þetta að segja: „Símafélagið á heima í hverri götu í hverju hverfi, og á okkur hvílir sú ábyrgð að vera góð- ir nágrannar. Við kunnum vel við, að fólkið, sem vinnur hjá okkur, láti sig einhverju skipta umhverfi sitt og hagi meðbræðra sinna. Þar er ekki aðeins um það að ræða að uppfylla skyldur sínar sem góður borgari, heldur er þetta líka „hag- kvæmf“ viðskiptalega séð.“ A1 var boðin ný staða hjá félag- inu með tvöföldum launum. John Trutter, sem er nú aðstoðarfram- kvæmdastjóri upplýsingadeildar fé- lagsins, lýsti þessu nýja starfi Als með eftirfarandi orðum: „Þú átt að halda áfram því félagslega starfi, sem þú vinnur núna, og finna nýjar leiðir til þess að gera félaginu kleift að hjálpa hverfinu og íbúum þess.“ A1 gat ekki trúað því fyrst í stað, að þetta væri raunverulegt. „Hvað ætlast þessir gæjar fyrir?“ spurði hann Annette. „Auðvitað vil ég heldur starfa að beinum tengslum við fólk en að dragast með upp- þvottafötu og gólfskrúbb. En hvers vegna skyldu þeir vilja borga mér fyrir það, sem ég hef unun af að gera?“ En þessi efi hans hvarf fljótlega, eftir að hann hafði tekið við þessu nýja starfi sínu. A1 gat nú eytt miklu meiri tíma í námskeiðin en áður. Þeir, sem störfuðu við nám- skeið þessi, höfðu komizt að því, er þeir unnu að því að þjálfa ungt fólk til þess að standa sig á vinnu- markaðinum, að það háði mörgum nemendum mjög mikið, hversu lé- legir þeir voru í lestri og skrift. Árið 1962 útskýrði Johnson og nokkrir samstarfsmenn hans þetta vandamál fyrir háskólastúdentum við Northwesternháskólann og aðra háskóla í borginni. Hundruð þeirra gáfu sig þá fram sem sjálfboðaliða. Þeir buðust til þess að koma til Lawndale tvö kvöld í viku til þess að kenna piltunum, sem gefizt höfðu upp við gagnfræðaskólanám- ið. Um 1300 ungir piltar og stúlkur hafa lokið þessum námskeiðum, og um 1100 þeirra fengu fasta vinnu. Einn þessara nemenda er nú fram- kvæmdastjóri veitingahúss, annar á blaðadreifingarfyrirtæki. Aðrir vinna sem þjónar, bifvélavirkjar, viðgerðarmenn, vörubílstjórar, mat- sveinar, sölumenn og afgreiðslu- menn. Um 125 þátttakendur ákváðu að leita sér ekki að vinnu að sinni. Þeir viðurkenndu, að þeir hefðu þörf fyrir meiri menntun, og fóru aftur í skóla.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.