Úrval - 01.06.1970, Page 116
114
ÚRVAL
haldslífinu og sambandi okkar við
það, kynni enn ein heimsmynd að
verða til og flestum líklegri til að
gjörbreyta viðhorfi mannkynsins til
lífsins hér á jörð — í fegurðarátt.
Ef gengið er út frá því, að fólk
með dulargáfur, sem kallað er, geti
læknað líkamlega sjúkdóma manna,
hversu líklegt er þá ekki, að marg-
ir venjulegir menn geti einnig lækn-
að sjúka, ef þeir leggjast á eitt og
sameina andlega orku sína? Því
svonefndar dulargáfur búa senni-
lega með hverjum heilbrigðum
manni, eða andleg orka, hversu sem
menn vilja skilgreina hana. En
þessi spurning hefur oft komið í
huga minn.
Þegar svo fréttir bárust af því,
að hafin væri einhvers konar starf-
semi í þessa átt, bæði hér á Akur-
eyri og sunnan fjalla, er eingöngu
byggðist á því, að hjálpa fólki með
krafti bænarinnar og að þar væru
litlir starfshópar að verki og árang-
ur undraverður, leitaði ég frétta
hjá Ólafi Tryggvasyni huglækni á
Akureyri. En hann er kunnur fyrir
lækningar sínar og þykir maður
kröftugur í andanum.
— Hinir dulrænu hæfileikar
fólks eru skilgreindir?
— Já, talað er um dulskyggni,
dulheyrn, forspár, framsýnir. Svo
er miðilsgáfan. Menn geta afhent
öðrum efnislíkamann til afnota og
talað tungum, fjarskyggni og hlut-
skyggni er einnig nokkuð algengir
hæfileikar. Ofar þessu öllu er e. t. v.
innsæið, sem er einn merkilegasti
eðlisþáttur mannsins og lífsnauðsyn
er að þroska. En innsæi fellst í
dýpri skynjun á einingu alls lífs
og innri úrkostum mannsandans.
— Hvað viltu segja um orku
mannsandans?
— Hún er ekki mjög mikið könn-
uð ennþá, en hún er eflaust miklu
meiri en mennina hefur nokkru
sinni dreymt um. Orkan er stór-
furðuleg þegar menn beita henni
til góðs og helzt nokkrir saman.
Þegar hugur margra manna stefnir
að því sama og ekkert er þar að
baki nema góðleikinn gerast furðu-
legir hlutir. Maðurinn er í eðli sínu
góður. Þegar hann leggur sig allra-
mest fram til að gera eitthvað
gott, verður orka hans mest. Mað-
urinn á rætur í einhverri upp-
sprettu, óendanlegri og göfugri, sem
verður honum aflgjafi.
— Margir einstaklingar hér á
landi hafa helgað sig því starfi, að
beita andlegri orku sinni til hug-
lækninga?
— Fleiri en almenningur veit um,
en um allmarga er kunnugt, þar
sem um þá hefur verið ritað. Mátt-
ugir menn í andanum, hafa alltaf
verið til og eru ennþá. Eins og
Biblían ber með sér, voru hinir
upphaflegu lærisveinar Krists, menn
með dulræna hæfileika og þroskuðu
þá undir handleiðslu hans, enda
gerðu þeir andleg kraftaverk, miklu
fleiri en postularnir tólf. Margir
eiga neistann án þess að þroska
hann. „Það dularfulla eitt er frjótt,“
hafa gáfuðustu og menntuðustu
menn látið sér um munn fara.
— Út frá huglækningum ein-
stakra manna er nú hafi ný starf-
semi?
— Rétt er það, að nokkrir starfs-
hópar hafa verið skipulagðir, og