Úrval - 01.06.1970, Page 118

Úrval - 01.06.1970, Page 118
116 ÚRVAL góður, að hann getur notað rétt og slétt alþýðufólk til þess, að gera kraftaverk, þar á meðal takmark- aða menn eins og mig. Guði hefur ekki farið aftur síðan Jesús þakk- aði honum fyrir verk smælingj- anna sjötíu, er hann sendi út um byggð og borgir til þess að boða guðsríkið með því að lækna sjúka og gjöra önnur kraftaverk. —En auðvitað verða menn að kunna skil á vissum hlutum og fyrirbærum. Svo er það einsætt á þessum starfs- vangi sérstaklega, að ofmeta ekki sjálfan sig né láta yfir sér. „Ætla eigi, að þú sért öðrum betri, svo að þú verðir ekki minni fyrir Guði.“ Sjáandinn taldi það ekki til dygða að álíta sjálfan sig góðan, en aðra vonda. Enda einkennist þetta um- rædda áhugafólk af hógværð og hjartans lítillæti. Það er ekki „skriftlært“. — Þú talar um kraftaverk. — Já, alveg ófeiminn. Það er reynsla fjölda manns, að þau ger- ast víðsvegar um heim, og eigi síð- ur hér á landi en annars staðar, þótt margir berji höfðinu við stein- inn. — Hvernig fara þessar helgi- eða bænastundir fram? — Öll andleg iðja finnur sér ein- hver form. En form tilbeiðslunnar skipta ekki máli, heldur kærleiks- andinn að baki beim. Þessi starf- semi er í fyrsta lagi tilbeiðsla og einbeiting, sem fer fram í þögn að mestu leyti, samkvæmt fáum ein- földum sálfræðilegum reglum, sem allir viðstaddir tileinka sér. Stund- in hefst með ákveðnum máttarorð- um og henni er slitið með öðrum máttarorðum. Öll máttarorðin höf- um við úr Nýjatestamenntinu. — Hugurinn fer víða og er fljótur í ferðum. Fjarhrif eru alkunn og vís- indalega viðurkennd. Það er góð- verk að rétta bágstöddum manni efnislegar gjafir, og sýna honum samúð í orðum. En hitt getur reynzt enn heilladrýgra að vitja hans í einrúmi, í andanum einum og hafa yfir honum undursamlegustu orð tungunnar og umvefja hann ljósi, í djúpri þögn. Þessi sjálfboðavinna er sjálfskylduraun. Þannig verða vel- viljaðir menn og víðsýnir, sem ástunda slíka góðgirni — með tím- anum góðir. — Afstaða almennings til slíkra mála? — Hún sýnir auðvitað ýmsar hliðar eins og áður, en þó virðist andstaðan þverrandi, og margt ungt fólk hefur áhuga á að kynna sér þessi mál. Ég hygg að allir vitibornir menn, sem ástunda andlega iðju, stefni að sama marki. Og það ætti að vera öllum ljóst, að sérhver, sem lætur sér koma til hugar að ganga á fund Guðs síns — hlýtur að leggja af stað, þar sem hann er staddur, en alls ekki frá einhverjum öðrum stað, þar sem hann er ekki stadd- ur. Og þess vegna er útilokað að allir fari sömu leiðina. í öðru lagi er það ekki sjálfsagt, að allir velji sömu leið, þótt stadd- ir séu á sama stað. Þrír náungar ættu að geta verið allgóðir félagar, þótt þeir velji ekki allir sömu leið- ina á ferð og flugi. Einn fljúgi til höfuðstaðarins, annar aki vestur og suður um sveitir, og sá þriðji fari
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.