Úrval - 01.08.1971, Blaðsíða 68
66
ÚRVAL
þetta, að við getum greint á milli
þúsunda mismunandi tegunda
þragð- og lyktarþlæbrigða.
Kerfið er líka óskaplega flókið.
Það virðist sem öll skilningarvitin
eigi þar einhverju hlutverki að
gegna. Þegar við segjum til dæmis,
að epli séu „góð á bragðið“, eigum
við að miklu leyti við lyktina af
þeim. Prófið þetta með því að halda
fyrir nefið, og reynið svo að finna
bragðmismuninn á hrárri eplastöppu
og hrárri kartöflustöppu. Annar
breytilegur þáttur er hitastigið. Það
er greinilegur munur á bragði kaldr-
ar eða heitrar mjólkur, bjórs eða
súpu. Aferðin er einnig annar þátt-
ur. Kekkirnir í búðingi eða korn-
óttur rjómaís fflun hafa áhrif á við-
brögð bragðskyns okkar til þessara
fæðutegunda.
Mörg dýr hafa fullkomnara bragð-
skyn en við mennirnir, enda er það
þeim miklu lífsnauðsynlegra.
Ótamdar rottur prófa til dæmis fæðu
með því að smakka á henni. Og rott-
an mun ekki éta nóg af fæðunni sér
til lífsviðhalds, fyrr en hún hefur
bragðprófað hana mjög ýtarlega.
Hvað mennina snertir, byrja þeir
að velja og hafna á sviði bragðskyns-
ins strax við fæðingu. Og mismun-
andi smekkur manna á þessu sviði
er eitt af helztu vandamálunum,
hvað snertir næga fæðuöflun handa
hinum vanþróuðu þjóðum. Alþjóð-
legi barnahjálparsjóður Sameinuðu
þjóðanna (UNICEF) hefur látið
hefja framleiðslu á sérstakri fæðu-
tegund með miklu eggjahvítuinni-
haldi til notkunar fyrir ungbörn í
Afríku. Hún á að koma í stað móð-
urmjólkurinnar, er börnin hætta að
vera á brjósti, en þar eru þau leng-
ur á brjósti en tíðkast annars stað-
ar, og móðurmjólkin verður smám
saman ónóg til þess að fullnægja
fæðuþörf þeirra. Vísindamennirnir,
sem unnu að rannsókn til undirbún-
ings fæðuframleiðslu þessari, kom-
ust að því, að bragðskyn barnanna
var ólíkt eftir héruðum. Sumum
geðjaðist mjög vel að sterku van-
illubragði, en önnur kusu heldur
bananabragð eða sítrónu- og appel-
sínubragð. En í öllum tilfellum
kusu þau heldur, að í fæðu þessa
væri bætt sætu bragði eða einhverj-
um öðrum bragðefnum.
SULTA BÚIN TIL EFTIR
UPPLÝSINGUM TÖLVU
f mestallri sögu mannsins hefur
bragðskynið gegnt þýðingarmiklu
hlutverki. „Langflest menningar-
þjóðfélög allra alda hafa sótzt ákaft
eftir ýmsum efnum Móður Náttúru,
sem notuð hafa verið til þess að
bragðbæta fæðu og forða henni frá
skemmdum," segir Wick. „Marco
Polo landkönnuður fór til dæmis til
Austurlanda í leit að kryddi. Og
Kólumbus uppgötvaði Ameríku, er
hann var að leita að nýrri „krydd-
leið“ til Indlands. Þangað til á síð-
ustu tímum hefur ekki alltaf verið
hægt að fá efni þessi, heldur hefur
slíkt verið komið undir árstíðum,
uppskerumagni og heimsstjórnmál-
unum. En nú höfum við snúið okk-
ur að tækninni í bragðefnileit okk-
ar.“
Þörf fyrir alls konar bragð- og
matvælageymsluefni er nú meiri en
nokkru sinni fyrr, því að bragð mat-
væla dofnar og tapast að meira eða