Úrval - 01.01.1974, Síða 18

Úrval - 01.01.1974, Síða 18
16 ÚRVAL hin lengsta, ef ekki stærsta, stór- verzlunarsamstæða í heimi. Líkt og draumsýn úr steini við fjarlægasta enda torgsins frá graf- hvelfingu Leníns séð, rís ein ævin- týralegasta bygging heims, kirkja hins blessaða Sankti Basils frá 16. öld. Með lauklaga kúptum sínum er hún undrasýn, einkum í flóð- lýsingu á kvöldin glitrar hún og sindrar eins og óslípaður gimsteinn. Hún var reist á dögum Ivans grimma til minningar um sigra hans yfir Tatörum. Ivan unni fegurð, þótt siðferðis- stig hans væri ekki hátt! Hann varð sínum eigin syni að bana í æðiskasti, var talinn harðstjóri haldinn kvalalosta og andaðist vit- skertur 53 ára að aldri. Til þess að vera öruggur um, að þetta meistaraverk byggingarlistar yrði aldrei yfirstigið, er sagt, að hann hafi látið stinga augun úr byggingarmeistaranum, sem teikn- aði kirkjuna. Meðal annarra grimmdarverka hans var stofnun leynilögreglu, sem sendi pólitíska andstæðinga hans til Síberíu. Hið rússneska nafn torgsins, Krasnaya, þýðir bæði ,,fagur“ og ,,rauðutr“. Síðari þýðingin bendir til rósrauða litarins á byggingunni við torgið. En nafnið er kaldhæðn- islega tengt við grimmdarlegar gerðir og atburði, sem þar hafa orðið. Þar hafa farið fram fjöldamorð og pyndingar verið gerðar á inn- rásarherjum, bræðravíg orðið og uppreisnir. í bræðravígum hafa uppreisnarmenn og fjárplógsmenn verið kyrktir þarna, sundur stungn- ir ,höggnir í spað, soðnir, frystir og fylltir sprengiefni og sprengdir. Á 17. öld voru „villitrúarmenn“ brenndir á torginu, tunguskornir og margvíslega píndir fyrir þá synd að signa sig með tveim fingrum í stað þriggja eða fyrir það hneyksli að stafsetja nafnið Jesús sem „Is- us“ en ekki „Iisus“. Á dögum Péturs mikla voru 1700 fótgönguliðar hengdir á Rauða torginu, hálshöggnir og steiktir til dauða á einum og sama degi. Hinn vöðvastælti keisari, sem var yfir tveir metrar á hæð, hjakkaði nokkur höfuðin af með eigin hendi og varð stórmóðgaður við nokkra útlenda sendiherra við hirðina, sem neituðu þátttöku í þessari at- höfn. Á okkar öld hafa hundruð rauð- liða og keisaralegra herskólasveina fallið þarna á gangstéttunum í orr- ustu um Kreml. KEISARALEG GIRÐING Gnæfandi yfir Rauða torgið eins og það hefur verið í átta aldir stendur Kreml, 65 ekra víðátta um- kringd höllum, kirkjum og stjórn- arbyggingum, sem skotið hafa mörgum manni skelk í bringu, öld eftir öld. Á 12. öld var þetta þorpið Moskva, timburvígi eða „kreml“ innan stauragirðingar. í dag er þarna stjórnarsetur 250 milljón . manna . ríkis, umkringt þykkum rósrauðum múrum, um 7 metra breiðum og 15 metra háum. Á tímum Stalíns var Kreml inn-
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132

x

Úrval

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.