Úrval - 01.01.1974, Side 21

Úrval - 01.01.1974, Side 21
19 DÝRÐLEG, HRÍFANDI OG . . . Öllu er lokið um klukkan ellefu að kvöldi, og um miðnætti eru göt- urnar hljóðar eins og kirkjugarð- ur. Samt er hægt að ferðast um þær öruggur fyrir líkamsmeiðing- um. BIÐRAÐIR Þótt vestrænir sérfræðingar ssgi allar aðstæður í Moskvu miklu betri nú en nokkru sinni fyrr, er flest sem neytendur varðar enn af skorn- um skammti, og verzlunarhættir bókstaflega martröð. Húsfreyjur verða að standa í bið- röð lon og don tímum saman í yfirfylltum stöðvum til að fá þó ekki sé nema kaffipakka eða kart- öflur. Fyrsta röðin er til að kaupa, önnur til að borga, og þriðja röðin til að tína saman það, sem keypt var, fá það í hendur. Gorkigata er ein mesta viðskipta- gata veraldar, en vöruvalið í glugg- unum er furðu fátæklegt. Ein smávöruverzlun, sem ég kom í, stillti aðeins út nokkrum græn- um eplum í gluggann, en inni feng- ust þau reyndar ekki. Og í öðrum búðarglugga, sem hafði klæðnað á boðstólum, var tylft af bómullar- sokkum — þeir voru allir gráir. Kæliskápar og önnur heimilis- tæki, sem voru til sýnis í stórverzl- ununum, báru með sér, að þau væru að 'minnsta kosti 20 ára að hönnun og gerð, og afgreiðslumaðurinn hafði ekki minnstu hugmynd um uppþvottavélar eða sjálfvirkar þvottavélar og þurrkvélar. Moskvubúar almennt búa í íbúð- um, sem eru aðeins fjórði hluti af þeirri íbúðarstærð, sem Banda- ríkjamenn almennt búa í. í Moskvu verða menn að bíða árum saman eftir að mega kaupa bíl, og samt má segja, að vandræð- in hefjist fyrst, eftir að þeir fá bíl- inn. í allri Moskvuborg eru aðeins 20 bensínstöðvar. Biðraðir eru þar langar, og oft verður að bíða tím- unum saman eftir afgreiðslu. Við- gerðir taka marga mánuði, og yfir- breiddir bílar, sem bíða viðgerðar, eru eitt hið algengasta, sem fyrir augu ber í Moskvu. Ekki ganga þessi óþægindi jafnt yfir alla Moskvubúa. Áhrifamenn í listum og stjórnmáium njóta sér- stakrar þjónustu í sérstökum deild- um vöruhúsanna, vel búnum og með afslætti. Þar fást bifreiðar og aðrar vörur á miklu skemmri tíma en í hinum almennu deildum, og íbúðir fá þessir áhrifamenn miklu fljótar en hinir. Útlendir ferðamenn fá líka leyfi til að verzla í svonefndum Bery- ozka-búðum. Þar geta þeir með forgangshraða keypt t. d. lúxus- bíla, sem erfitt er eða ómögulegt að fá annars staðar í borginni og meira að segja á lágu verði. Þar kostar flaska af úrvalsvodka að- eins um 170 ísl. krónur, svo að dæmi sé nefnt. BORG ÁN BROSA Erfiðast af öllu, sem leitað væri að í Moskvu, er að finna sviphýr andlit. É"g get naumast sagt, að ég sæi nokkurn tíma bregða fyrir brosi í umhverfi mínu þarna, hvorki á
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.