Úrval - 01.01.1974, Page 37

Úrval - 01.01.1974, Page 37
KRUFNINGIN BJARGAR MANNSLÍFUM 35 úr lungnastíflu (sem orsakast venju lega af blóðtappa), að einungis tæp ur helmingur sjúkdómsgreining- anna var réttur. (En úr sjúkdómi þessum deyja líklega allt að 50.000 manns árlega í Bandaríkjunum). Eins reyndist ekki nærri alltaf vera um heilablæðingar að ræða í „slag- tilfellum", heldur var þar um að ræða afleiðingu af stíflu í hálsslag- æð. Síðan hefur verið beitt skurð- aðgerð til þess að gera við háls- slagæðina og aðferð sú stöðugt endurbætt. Hefur skurðaðgerð þessi bjargað mörgum mannslífum. „Slík röng sjúkdómsgreining gefur ekki tilefni til þess að efast um hæfi- leika læknis,“ segir dr. Prutting. „Hún er fremur sönnun þess, hversu mikið læknavísindin eiga enn ólært.“ . . . Líkkrufning dregur oft úr sárustu sorg syrgjendanna. Sem dæmi má nefna, að móðir vinar míns dó, fjórum dögum eftir að hún hafði fengið heilablæðingu. Hún var aðeins á sextugsaldri og hafði verið sístarfandi og búið yfir mikilli orku. En líkkrufning leiddi í ljós, að dauðinn hafði verið sann- kölluð náð í þetta skipti, því að heilaskemmdirnar voru svo miklar, að hún hefði verið alveg hjálpar- vana bæði andlega og líkamlega, hefði hún lifað lengur. . . . Líkkrufning getur jafnvel orðið til þess að leysa lögfræðileg vandamál. Einn læknir skýrir frá rosknum hjartasjúklingi, sem geng- izt hafði undir skurðaðgerð og lát- ið græða gerviæðabút í gallaða slagæð. Nokkrum dögum eftir upp- skurðinn rakst maðurinn á nátt- borðið sitt, hneig síðan ofan á rúro- ið og dó. Hin sorgbitna ekkja synj- aði fyrst um leyfi til líkkrufningar, en að lokum fékkst hún til þess að veita slíkt leyfi. Meinafræðingur- inn komst að því, að sprungið milta hafði valdið dauða mannsins, en miltað hafði sprungið, þegar mað- urinn rakst harkalega á borðið. Því var um dauða af slysförum að ræða, og ekkjan fékk þannig tvöfaldar skaðabætur. Læknirinn hafði ótt- azt, að dánarorsökina mætti kann- ski rekja til uppskurðarins, og því létti honum, þegar hið sanna kom í ljós. o—o Þrátt fyrir hina augljósu þýðingu líkkrufninga fyrir læknavísindin, fyrir líf manna og heilsu og fyrir sálarró þeirra er ástandið í þessum efnum svo ömurlegt í Bandaríkj- unum, að krufið er aðeins um eitt lík af hverjum fimm. Ein ástæða þessa ástands er sú, að mörg fylkja lög okkar gera læknum erfitt um vik við að afla sér leyfis til lík- krufningar. Á sumum Norðurlönd- unum og í sumum héruðum Sviss getur læknir eða sjúkrahús gefið leyfi til krufningar, nema ættingj- ar hins látna mótmæli slíku. Á borgarsjúkrahúsum í Sovétríkjun- um eru næstum allir látnir sjúkl- ingar krufnir. í Bandaríkjunum þarf að afla skriflega, undirritaðs samþykkis ættingja hins látna strax eftir dauða hans. En það er erfitt að taka slíka ákvörðun á svo erfið- um augnablikum. En afdrifaríkasta ástæðan er auð- vitað tilfinningaleg andstaða leik-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.