Úrval - 01.01.1974, Page 41
ELDFLAUG SEND í JÖRÐ NIÐUR
39
25 km inn í jörðina skapar aug-
sýnilega mjög freistandi framtíðar-
horfur. Sovézkir sérfræðingar hafa
þegar samið áætlun um dýptarbor-
anir, og er þar gert ráð fyrir að
bora fimm holur víðs vegar um
Sovétríkin, og eiga þær að verða
10—15 km á dýpt. Enn hafa ekki
verið gerðar áætlanir um notkun
eldflaugar Tsiferovs eða minni
þrýstigasbors. Áætlað er að nota
venjulega bortækni, en auðvitað
endurbætta.
Þetta er vel framkvæmanlegt.
Sovézkir verkfræðingar og vísinda-
menn hafa öðlazt geysilega reynslu
eftir margra áratuga borunarfram-
kvæmdir við erfið náttúruskilyrði.
En hér er samt ekki um neitt auð-
velt viðfangsefni að ræða.
Bortækið (t. d. boroddurinn, sem
er úr demant) hangir í málmturni,
sem myndaður er úr einstökum
hlutum, sem skrúfaðir eru saman
(Er þar um að ræða rör, sem köll-
uð eru „standar"). Slík margsam-
sett röralengja, 15 km á lengd, kann
að bresta undan áhrifum eigin
þunga, jafnvel þótt hún sé gerð úr
geysilega hörðu stáli. En líklega
mun verða notazt við léttari efni
en stál, efni, sem eru jafnframt
endingarbetri, t. d. efni, sem rekja
má til titanium. Þau munu gera
það mögulegt að bora niður í 18
km dýpt. Sérstakur útbúnaður
verður svo að koma í veg fyrir, að
þessi margsamsetta röralengja
bogni. Annars kynni hún að bogna
og sveigjast til hliðar eða koma
jafnvel einhvers staðar upp á yfir-
borðið aftur.
En það er við fleiri erfiðleika að
etja. Hve háan borturn þarf til þess
að koma 15 km málmlengju niður
í jörðina? Sumir verkfræðingar
hafa stungið upp á því, að smíðuð
verði eins konar risatunna, sem
hægt væri að vefja geysilegri röra-
lengju utan um eins og um nokk-
urs konar vindu væri að ræða.
En þessu fylgja samt mörg óleyst
vandamál. Vafalaust geta sovézkir
sérfræðingar leyst þau, en þeir hafa
þegar leyst vandamál, sem var engu
síður erfitt, þ. e. borun á öðrum
hnöttum. Við lifum á tímum óvenju
legra og róttækra lausna. Auk þess
að styðjast við endurbætur og þró-
un tækja og aðferða, sem þegar eru
þekkt, mun verða gripið til rót-
tækra lausna, sem byggjast á því
að varpa fyrir borð hefðbundnum
aðferðum. Þar verður um að ræða
byltingu í verkfræðilegri hugsun.
Hugmynd Tsiferovs er því óneitan-
lega freistandi, enda hefur hún
þegar sannað notagildi sitt í til-
raununum, sem framkvæmdar voru
rétt fyrir utan Moskvu.
KJARNORKUBOR í SKÖPUN
Enn getur bor Tsiferovs ekki bor-
að mjög djúpt í jörðu niður. En
notagildi hans er þegar mjög mik-
ið og margþætt, þar á meðal borun
grunnra tilraunaborhola, hola fyrir
staura og aðrar undirstöður, brunna,
gangna fyrir leiðslur og lítil jarð-
göng. Kannski mun hann einnig
reynast gagnlegur við björgunar-
störf, þegar námuslys verða og
námumenn þarfnast tafarlaust lofts
og matar.
Hvernig væri að láta sig dreyma
svolítið um framtíðina, þ. e. þá