Úrval - 01.01.1974, Blaðsíða 58

Úrval - 01.01.1974, Blaðsíða 58
56 ÚRVAL stjórninni, og þau námu 1650 kr. á mánuði, þar eð sárið, sem hann hlaut í styrjöldinni var ekki talið alvarlegt. „Grískur hermaður hjó af mér fingur, með sverðinu sínu,“ sagði hann. „Nú ætla ég í göngu- ferð, ég geri ekki annað núorðið, sit og geng, geng og sit.“ Gamli hermaðurinn setti upp svartan kósakkahatt, áður en hann fór. Sennilega hefur hann haft ,,feg“ á sínum yngri árum. En Altatúrk afnam aldagamla klæða- tízku. Það var einn þátturinn i endurbótum til að breyta unga lýð- veldinu til nýrra siða. Hann stytti líka stafrófið í samræmi við lat- neskt letur. Hvatti til kvenfrelsis og þótt íbúar séu 99 af hundraði Múhameðstrúar, þá gaf hann rík- inu æðsta úrskurðarvald í trúmál- um. Ataturk vantreysti Istanbul alla tíð vegna hins sögulega sambands við keisaradæmið og flutti því stjórnaraðsetrið til Angora, sem nú er þekkt undir nafninu Ankara. Samt gat hann ekkert gert til að breyta hlutverki Istanbul sem æðsta menningarsetri og miðstöð verzlunar, vísinda og forystu í mál- efnum Tyrkja. Þótt borgin sé svipt stjórnarað- stöðu sinni og löggjafarvaldi held- ur hún áfram að vera kóróna hins forna ríkis. INNRÁS SVEITAFÓLKS TIL ISTANBUL „Getur nokkur neitað, að Istan- bul sé stærsta borg Tyrkjaveldis, þegar 58 prósent af iðnaði þjóðar- innar er framleitt hér og 52 pró- sent af allri verzlun er hér og í umhverfi borgarinnar,“ spurði dr. Fahri Ataleey og yppti öxlum, þar sem hann sat í stól sínum. „Níu- tíu af þeim 800 þúsund útlendra gesta, sem heimsækja Tyrkland ár- lega, koma einnig hingað,“ bætti hann við, ,,og eyða hér tíma sín- um. Auk þessa alls eru fegurstu konur Tyrklands í Istanbul.“ —• Dr. Ataleey er læknir að mennt og borgarstjóri Istanbul. Hann á við ýmis vandamál að stríða, ekki sízt gagnvart samstarfi í borgarstjórninni, sem er mynduð af 102 aðilum. „Flestir þeirra haga sér eins og flokkur andstæðinga,“ andvarpaði hann. „En samt get ég minnzt á enn alvarlegra málefni, en það er stöð- ugt aðstreymi innflytjenda hingað úr sveitunum.“ Mótaðir af krafti og virðuleika, sem einkennir sveitafólk Litlu- Asíu, koma þeir ákveðnir, þrátt fyrir hindranir um 150 þúsund ár- lega. Menn með brotnar og óhrein- ar neglur úr þeirri akurmold, sem brást, þyrpast daglega í verksmiðj- ur borgarinnar í leit að vinnu. Konur reyna að gera sér heim- ili eða hreysi úr skúraskriflum, hrófluðum upp til einnar nætur og börn gera sér alla staði að leik- völlum og alla hluti að leikföngum. Ein af stærstu nýlendum þessara „innrásarmanna" úr sveitunum er í hinum nýja hluta Evrópumegin í Istanbul, nokkrum húsalengdum frá stærsta hóteli borgarinnar. Þar hafði ég tal af manni, sem var búinn að dvelja í borg- inni í tvo mánuði. „Þorpið mitt er
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132

x

Úrval

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.