Úrval - 01.01.1974, Page 89
SANNLEIKURINN UM LÚSITANÍU
87
og hvöttu til þess, að þýzkir kaf-
bátar hættu einnig að taka tillit til
,,Beitiskipsreglnanna“ og réðust á
öll kaupskip Bandamanna án und-
anfarandi aðvörunar.
Almenningsálitið í Þýzkalandi,
bæði manna á meðal og eins og
það birtist í blöðunum, krafðist
einnig hefndarráðstafana vegna
brezku bardagaaðferðanna, þar á
meðal hafnbannsins á Þýzkaland,
sem hófst skömmu eftir stríðsbyrj-
un, en áhrifa þess var þegar farið
að gæta. I rauninni hafði skömmt-
un korns og mjólkurafurða hafizt
í Þýzkalandi í vikunni á undan.
Þ. 4. febrúar birti þýzka ríkis-
stjórnin svo formlega ákvörðun
sína: „Hafið umhverfis Stóra-Bret-
land og írland, þar á meðal allt
Ermarsund, er hérmeð gert að hluta
hins yfirlýsta svæðis hernaðar-
átaka.“ (Bretland hafði lýst því yf-
ir þrem mánuðum áður, að Norður-
sjórinn væri ' nú orðinn hluti af
svæði hernaðarátakanna).
William Jennings Bryan utanrík-
isráðherra Bandaríkjanna, var í
fyrirlestrarferð, þegar þessi yfirlýs-
ing hans var formlega afhent Utan-
ríkisráðuneyti Bandaríkjanna. Ro-
bert M. Lansing, fulltrúi hans, tók
við hinni þýzku orðsendingu í fjar-
veru hans.
Lansing, sem var hár maður
vexti, siðfágaður og mjög metnað-
argjarn, dró augsýnilega taum Bret-
lands og Bandamanna þess í styrj-
öldinni. Hann gekk jafnan í tweed-
fötum upp á brezkan máta og lagði
stund á nám í framsögn í frítím-
um sínum til þess að öðlast ensk-
an hreim. Þrátt fyrir hina yfirlýstu
stefnu Bandaríkjanna um „algert
hlutleysi" hafði hann þegar átt þátt
í því að útvega Bretlandi lán í
bandarískum bönkum.
Viðbrögð hans gagnvart þýzku
yfirlýsingunni einkenndust af and-
spyrnu gegn henni. Og hann sendi
uppkast að svari í flýti. í því birt-
ust engin viðbrögð við uppástungu
Þjóðverja um, að bandaríska ríkis-
stjórnin varaði Bandaríkjamenn við
að taka sér far með skipum Banda-
manna. Og þegar Bryan utanríkis-
ráðherra kom aftur til Washington,
mótmælti hann því harðlega, að
Lansing skyldi hafa látið undir
höfuð leggjast að sýna viðbrögð
gagnvart uppástungu þessari. En
samt varð skoðun Lansings ofan á.
Bandaríkjastjórn reyndi að við-
halda svolitlum leifum hlutleysis
með því að senda brezku stjórn-
inni harðorða mótmælaorðsendingu,
um leið og hún svaraði orðsendingu
Þýzkalands. f orðsendingunni til
Breta kvartaði hún yfir því, að
ensk skip notuðu bandaríska fán-
ann. Brezka utanríkisráðuneytið
svaraði í blíðlegum tón, að hvorki
ríkisstjórnin né Flotamálaráðuneyt-
ið hefði lagt blessun sína yfir slík-
an verknað. Þetta var rakin stjórn-
málalygi, og það hlýtur Lansing að
hafa vitað, þar eð þýzku yfirlýs-
ingunni höfðu fylgt ljósmynduð af-
rit af þeim fyrirmælum Brezka
flotamálaráðuneytisins, sem þýzki
kafbáturinn U-21 hafði náð tangar-
haldi á. Lansing hafði látið sem
Hann sæi ekki þessi fylgiskjöl og
hafði hvorki nefnt þau við Bryan
né Wilson forseta.
f bandarísku orðsendingunni til