Úrval - 01.01.1974, Side 103
SANNLEIKURINN UM LÚSITANÍU
101
svæðið á morgun, munum við vera
örugg í umsjá Hins konunglega
flota."
ÖRLAGARÍKIR FUNDIR
Turner var staddur í brúnni í
dögun næsta morgun, föstudaginn
7. maí. Skyggnið var aðeins tæpir
30 metrar. Hann hægði ferð skips-
ins niður í 15 hnúta og lét setja
þokulúðurinn í gang. Nú var Juno
statt um 100 mílur austur af Lusi-
taníu og sigldi í átt til Queenstown.
U-20 var nú staddur á yfirborði
sjávar 120 mílum framundan Lusi-
taníu. Schwieger kafbátsstjóri stóð
í útsýnisturninum, á meðan verið
var að hlaða rafgeymana. Hann var
umluktur þéttri þoku. Hefði þok-
unni ekki létt um það leyti, sem
lokið yrði við að hlaða rafgeym-
ana, ætlaði hann að halda áleiðis
heim til Þýzkalands.
Klukkan 11 f. h. stakk U-20 sér.
eftir að Schwieger hafði komið
auga á eitt af eftirlitsskipum Cokes
rétt fyrir utan hafnarmynnið i
Queenstown. Hann ákvað að vera
í kafi fram að hádegi, en sigla þá
upp undir yfirborðið og skyggnast
þá um með hjálp sjónpipunnar. Nú
létti þokunni í vestri, og Turner
jók hraða Lusitaníu úr 15 upp í 18
hnúta. Hann svipaðist áhyggjuful1-
ur um og rýndi í sjóndeildarhring-
inn í leit að Juno. En hann kom
ekki auga á neitt skip. írlands-
strönd var enn sem óljós rák við
sjóndeildarhring. og hann skipaði
svo fyrir, að vikið skvldi svoUtið
frá fvrirfram ákveðinni stefnu
skipsins, þannig að það sigldi um
mílu nær landi en gert hafði verið
ráð fyrir, svo að hann gæti geng-
ið úr skugga um, hver nákvæm
hnattstaða skipsins væri.
í aðalbækistöðvum sínum í
Queenstown rannsakaði Coke vara-
sjóliðsforingi eftirlitssvæði sitt og
allar áætlanir þar að lútandi gaum-
gæfilega. Hann varð sífellt áhyggju
fyllri. Hann gekk úr skugga um
fjölda þeirra eftirlitsskipa, sem
hann hafði nú tiltæk á næstu slóð-
um, og nákvæma staðsetningu
þeirra. Hann komst að því, að í
aðstoðareftirlitsskipasveitinni voru
13 fiskibátar, þrír vélbátar og þrjár
skemmtisnekkjur, og var floti þessi
dreifður um næstum 200 mílna
svæði. Eitt þessara skipa, Scadaun
að nafni, var að fylgja aðstoða1--
dráttarbátnum Hellespont frá svæð-
inu við Fastnetklett til hafnar í
Queenstown. Hellespont hafði þá
sérstöðu meðal flestra eftirlitsskipa,
að í því var sendi- og móttökustöð.
Coke ákvað að láta losa dráttarbát-
inn frá Scadaun og senda Scadaun
síðan af stað til þess að leita að
kafbátum á svæðinu milli Fastnet-
kletts og Queenstown.
Hann hélt því fram síðar, að um
klukkan 11 f. h. hefði hann talað
við Flotamálaráðuneytið. Það eru
ekki til nein skrásett gögn um það,
hvað hann sagði í þessu samtali. En
Coke hefur lýst yfir því, að hann
hafði beðið um leyfi til þess að láta
Lusitaníu breyta stefnu sinni. en
hann hafi ekki getað fengið endan-
lega ákvörðun í því efni.
Hellespont var aðstoðardráttar-
bátur úr kaupskipaflotanum og
hafði því svipaða aðstöðu og Lusi-
anía. Bæði þessi skip höfðu því