Úrval - 01.08.1974, Síða 25
STÓRVELDI KOMA OG FARA
23
Á síðari öldum hið sama, en önn-
ur stórveldi.
Spánn, Portúgal í vestri, Niður-
lönd á Austurlöndum fjær sem ný-
lenduveldi, Frakkland í Indó-Kína.
Við erum vitni af hnignun Breta-
veldis, en um það var einu sinni
sagt. að þar gengi aldrei sól und-
ir.
Og nú ■— önnur veldi — Banda-
ríkin — berjast í hátign sinni úti
við sjóndeildarhring heimsmála í
öllum áttum með hersveitum sín-
um, flugvélum sínum, flota sínum,
fjársjóðum sínum, viðskiptasnilli
sinni og iðnvæðingu.
í veröld þar sem 40 prósent fólks
í þróunarlöndum vinnur fyrir
minna en 110 dölum á ári, eru
Bandaríkjamenn auðugri en nokk-
ur þjóð hefur nokkru sinni verið
í allri sögu mannkyns.
Kall efnalegra þæginda og alls-
nægta er himinhrópandi.
Tómstundir og leikir er meira
metið en starf. Óhófið æðra en spar
semi og ráðdeild.
Gleymum þá ekki:
Hvert stórveldi heims ris og hníg-
ur sem alda úthafsins.
Og standandi augliti til auglits
við vandamál veraldar, ættum við
að hafa fast í huga, að aldrei má
gilata þeim hugsjónum hjartans,
sem varðveita þá eilífu fjársjóði,
sem einir gilda sem grundvöllur
frelsis, mannréttinda — og fram-
haldandi lífs á þessari jörð.
ÁN.
Ganga í Iofti.
Þrýstiloftstækni, sem gjört hefur geimförum kleift að rannsaka
tunglið, mun nú einnig gera lömuðum mögulegt að ganga urp á
jörðinni. Þeir geta gert þetta studdir lofti, sem blásið er í sérstaka
nylonboli, sem hafa leiðslur niður eftir fótleggjunum, sem geta
orðið það stífar, að þeir haida hinum fatlaða uppréttum, svo að
hann getur gengið við hækjur.
Til að setjast eru notuð smáhólf, sem hægt er að þrýsta saman,
svo að þau leggjast tvöföld. Von er um það í framtíðinni, að unnt
verði að útbúa þetta nokkurs konar liðamótum.
í fyrstu var þetta útbúið af frönskum lækni fyrir fótbrotin börn.
Sá læknir hét Georges Morel. En fljótlega vakti sú aðferð eftirtekt
og hefur þróazt til frekari aðgerða,' sem gefa lömuðum og fötluð-
um miklar vonir um betri aðstöðu til lífs og starfa á næstunni.
Uppgötvun þessi nefnist á útlendum málum Ortho-Walk og er til
margra hluta þægileg með tilliti til hjúkrunar og lækningar fötluðu
fólki.