Úrval - 01.08.1974, Side 30
28
URVAL
menn og hugsa, þegar þeir búast
til bardaga?
Carl Beek í 82. deild flughersins
minnis^; þess, að „Tommy Burk
söng írskan uppreisnarsöng, og allir
tóku undir. En stundum urðu dreng
irnir svo hrærðir, að hægt var að
heyra þá biðjast fyrir yfir dyn
flugvélanna“.
Ernest L. Gee liðþjálfi minnist
þess, að stemningin í vélinni hans
var rofin af Huth hermanni, sem
af ókenndri snilli hermdi eftir
Roosevelt forseta í föðurlandsástar-
tón, þegar þýzkar flugvélar steyptu
sér yfir þá og sagði:
„Vinir mínir, ég segi ykkur aftur
og aftur, að synir ykkar og synir
mínir munu aldrei berjast á er-
lendri grund“.
Annars staðar voru menn áhyggju
fullir út af orðrómi, sem þeir höfðu
heyrt. Julien Rosemond kapteinn
var hugsandi yfir útvarpsfréttum
frá „Berlinartæfunni", sem þeir svo
nefndu. Hún hafði gortað af því,
þessi útvarpsstöð, iað Þ'jóðverjar
biðu þess, að drengirnir lentu, þá
hringdu kirkjuklukkur og innan
ölrfárra mínútna yrðu þeir allir
handteknir eða dauðir.
Og þegar Rosemond stóð í dyr-
um vélar sinnar lágt yfir litla,
franska þorpinu Mére Eglise,
heyrði hann glöggt klukknahljóm-
inn í næturkyrrðinni.