Úrval - 01.08.1974, Page 44

Úrval - 01.08.1974, Page 44
42 ÚRVAL með latneskum glósum og frösum úr kirkjusögu síðari tíma. Kardinálinn áleit slíkt aðeins þýðingarlítinn hluta hins almenna prestsdóms. Hann ávarpaði þá á prófdögum. Við vissum hann þjáð- an, en við ræðuflutning sinn var hann eins og óbifanlegur hlutur. „Við göngum í gegnum ægilegt tímabil í prestslegri köllun“, sagði hann, „eins og ykkur er ljóst“. „Ungur prestur sagði við mig: „Yðar tign, ég hef týnt trú minni". En ég sagði við hann: „Með allri virðingu fyrir gáfum yðar og hæfileikum, þá er ég viss um, að við erum báðir of sljóir til að týna trú okkar. Gáfnagarpar eins og Marteinnn Lúther geta týnt trú sinni. En þér og vér verðum bara leiðir“. Nemendur voru mjög hrifnir af slíkri hæversku. Vissulega ættu 'ýkniss konar vandamál eftir að mæta þeim til úrlausnar. En kard- inálinn hafði yfirstigið öll stig mælskufræðinnar. Hann talaði um annað vandamál, sem mundi oft verða á vegi þeirra, en sjaldan rætt. „Ég hef oft verið spurður af mönnum, sem koma seint inn í starf kirkjunnar eins og sumir ykk- ar: „Hvenær dvínar holdsfýsnin? Hvenær kemur ró yfir mann? Eg er nú 72 ára — og veit það hreint ekki ennþá“. Við tókum myndir af kardinál- anum í heimsókn hjá eldri konum, nokkurs konar elliheimili. Hann kom þar inn úr dyrunum með körfu fulla af smá flöskum, fullum af whiskey, sem hann hafði vafalaust fengið í heildsölu eða hjá flugfélaginu. Hann gekk um salinn og stanzaði hjá hverri einustu af þessum smá- vöxnu konum, rétti henni litla flösku og sagði: „Hérna, góða mín, ofboð lítið af lífsins vatni til að hefja hátíðina". Ein þessara kvenna þreifaði eftir hönd hans og reyndi að kyssa hring inn hans. „Blessuð vertu ekki að kyssa hringinn. Kysstu heldur kardinál- ann sjálfan“. Hann rak henni rembingskoss og þau dönsuðu um gólfið. Richard Cushing er fæddur í fjöl- býlishúsi í Suður-Boston 1895. Hann er annar í röðinni af fimm börnum Mary og Patricks Cushing. Faðir hans var jámsmiður og vann alla sjö daga vikunnar fyrir 18 dölum á vagnasmiðjunni við járnbrautarstöðina í Boston. Móðir hans vann aðeins fyrir tveim dölum á viku sem vinnukona í eldhúsi, áður en hún giftist. Helzta ástæðan fyrir því, að Richard fór í guðfræðinám, var sú, að þar fékk hann menntun og von um starf. ÁN.

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.