Úrval - 01.08.1974, Page 48
46
ÚRVAL
UNDIRSKÁLA-SÝNIR.
Það var 24. júní 1947, að slíkra
hluta í loftinu var fyrst getið í
fréttum. En þá sá Kenneth Arnold,
kaupsýslumaður í Idaho, disklaga
hluti að minnsta kosti níu að tölu
þjóta fram hjá með feikna hraða,
þar sem hann var á einkaflugvél
sinni nálægt Mount Rainer í Wash-
ington.
Þetta kom honum mjög óvenju-
lega fyrir augu „líkast undirskál,
sem fleytti kerlingar á vatni“.
Blaðamaður, sem átti viðtal við
Arnold, mótaði þar með hugtakið,
„fljúgandi diskur“, sem fylgt hefur
síðan þéssu fyrirbrigði, og innan
mánaðar hafði fréttin flogið um öll
ríki Bandaríkjanna.
En síðan hefur furðulegur fjöldi
slíkra fregna flogið út um heim-
inn.
Skýrslur um traustgerða. málm-
kennda flughluti, sem skora vís-
indin á hólm til frekari skýringar
og kynna, innan sinna vébanda,
þar eð þeir ógna flugleiðum lofts-
ins.
Þessir óþekktu geimhlutir birtast
á ratsjárskífum og í myndavélum.
Þeir trufla sjónvarps- og hljóð-
varpssendingar, stöðva vélar í vögn
um, fæla og trylla fénað í högum,
hafa undarleg áhlrif á heilsufar
fólks, valda meðal annars „sól-
bruna", magnleysi og geislavirkni,
þó vægri.
Þegar þeir „taka land“ valda þeir
visnun á trjálaufi, óútskýranlegum
efnabreytingum í jarðvegi og sviðn
um hrinngjum með þríhyrndum
merkjum á ökrum.
Háskólinn í Kólóradó hefur undir
forystu David Sauders sálfræðings
safnað og flokkað yfir 60 þúsund
slíkra skýrslna frá einstökum vitn-
um.
Meirihluti þessara frásagna koma
auðsjáanlega ekki úr samsuðupott-
um og steikarpönnum „fljúgandi
diska“ •—■ sérfræðinga, heldur frá
fólki, sem ekki er snortið minnsta
áhuga fyrir slíkum fyrirbrigðum
■—- áður en það sá þau.
Þetta er fólk með heilbrigða hugs
un og eftirtekt, sem ekki yrði vænt
um nokkra ósamkvæmi í vitna-
leiðslu og yfirleitt tekið hiklaust
trúanlegt á öðrum sviðum.
John Stanford, fyrrverandi gáfna
mælingastjóri í Pentagon, gefur
svohljóðandi yfirlýsingu um þetta:
„Skýrslur hafa borizt frá trú-
verðugum sjónarvottum um tiltölu-
lega ótrúlega hluti“.
Nær alltaf geta vitnin þess, að
þau hafi talið sig sjá kunnug fyr-
irbrigði, flöktljós á sjúkrabifreið,
lágfleyga flugvél, eða eitthvað því
um líkt. Það er fyrst, er þeir at-
huga nánar þetta fyrirbrigði, sem
nam kannske staðar í loftinu, skipti
litum eða var án vængja, að þeir
uppgötva, að þarna var eitthvað,
sem þeir höfðu aldrei fyrri aug-
um litið.
Þegar Coyne lækkaði flug þyrl-
unnar, hélt hann sig í fyrstu vera
að mæta orrustuþotu, sem æddi
gegn honum yfir næturhimninn.
„En ef það var þota“, segir hann
síðar, .„sneru ljóain að minnsta
kosti öfugt miðað við samþykkt
allra þjóða, og það flaug einnig