Goðasteinn - 01.12.1964, Blaðsíða 25
um langan aldur. Víkingarnir í Normandie voru stríðsmenn og
yfirstétt, en þeir voru fámennari en fólkið, sem fyrir var í land-
inu. Því fór svo brátt, að hinir norrænu menn týndu tungu sinni
og tóku upp frönsku í staðinn. Einnig tileinkuðu þeir sér franska
og alþjóðlega riddaramenningu með góðum árangri. Göngu-
Hrólfur var fyrsti hertoginn í Normandie, og síðar ríktu þar
afkomendur hans hver af öðrum, fyrst Vilhjálmur, þá Ríkharðar
tveir, síðan Róbert faðir Vilhjálms, er lagði undir sig England
og nefndur er bastarður í íslenzkum sögum, af því að hann var
óskilgetinn. Vilhjálmur kom til valda árið 1035 aðeins átta ára
að aldri. Fóru aðrir með stjórn landsins, þar til hann varð
myndugur árið 1047. Eftir það hóf hinn ungi hertogi að stjórna
sjálfur af festu og dugnaði. Margir aðalskenn kunnu illa af-
skiptum hans og hófu uppreisn. Gat hertoginn aðeins sigrað þá
og eflt veldi sitt með stuðningi frá lénsdrottni sínum, Fralcka-
konungi. Eftir þessa eldskírn fór vegur Vilhjálms mjög vaxandi.
Reyndist hann afburðasnjall bæði sem stjórnmálamaður og hers-
höfðingi. Tryggði hann sér vináttu og stuðning voldugra ná-
granna með mægðum og margvíslegum samningum. Stóð hann
þannig vel að vígi haustið 1065, þegar augljóst var, að Játvarður
góði Englandskonungur ætti ekki marga mánuði ólifaða.
Vilhjálmur gerði kröfu til ríkiserfða í Englandi eftir Játvarð
sakir frændsemi við hann. Hafði hann lengi haldið kröfum sínum
á lofti og magnaði þær um allan helming, eftir að Játvarður
andaðist í ársbyrjun 1066. Hélt hann því fram, að Játvarður hefði
heitið sér ríkinu, þegar hann var landflótta í Normandie á yngri
árum. Auk þess sagði Vilhjálmur, að Haraldur Guðnason, sem
Englendingar kusu til konungs eftir Játvarð, hefði heitið að
hjálpaTsér til að ná landinu eitt sinn, er hann var skipreika í
Normandie. Þannig hafði Vilhjálmur margvíslegan áróður í
frammi, jafnframt því sem hann vígbjóst af kappi. Það var mjög
til að styrkja aðstöðu hans, er honum heppnaðist að fá páfann
í Róm til að stimpla Harald Guðnason sem óguðlegan valda-
ræningja í Englandi og leggja blessun kirkjunnar yfir væntanlega
herferð Vilhjálms.
Ágætlega gekk hertoganum að safna liði í Normandie, auk
Godasteinn
23