Goðasteinn - 01.12.1964, Page 65

Goðasteinn - 01.12.1964, Page 65
Hann gerðist bóndi í Vatnahjáleigu, staðfesti ekki ráð sitt, en bjó með konu þeirri, er Guðný hét. Var með þeim ástúðlegt. Fáar sögur fara af heimilisháttum hjá Hermanni, en allt var þar í föstum skorðum og engu sóað i óþarfa. Hermann brá búi 1905. -o- Ég hafði séð Hermann nokkrum sinnum. Hann kom mörg vcr austur tindir Fjöll og fékk að fljóta hjá Stefáni Guðmunds- syni á Mið-Skála í róðrum út á Holtshraun. Fékkst þar þá oft hlaðafli af löngu. Hermann flutti feng sinn út að Vatnahjáleigu. Mikil vinátta var með Stefáni og honum. Stefán bjó við kröpp kjör. Veit ég mcð vissu, að Hermann var honum á ýmsan veg vinur í raun. Mér varð starsýnt á þennan þrcklega Landeying. Hann var ekki meira en meðalmaður á hæð, en samanrekinn, mun hafa verið dökkur á hár og skegg, en hvorttveggja var farið að grána. I andliti var hann skarpleitur og heldur magur, augnabrúnirnar miklar og augnatillitið hvasst. Bar mjög á því, ef honum rann í skap. Var þá líkt og horft væri inn í hellisgjögur, þar sem eldar brunnu inni. Hermann hafði fremur langar hendur og holdlitlar, fingurliðir óvenju sverir, en holdið eins og kroppað milli þeirra. Það var ljóst auðkenni þess, að Hermann væri reiður, er hann kreppti hendur og rétti úr þeim á víxl. Var andstæðfiingnum þá hentast að láta undan síga. Raunar gerðust fáir til þess að reita Hermann til reiði og varla, nema öl væri með í leiknum. Maður er nefndur Hjörleifur og var Nikulásson, ættaður úr Skaftafellssýslu. Hann var mikill vexti og vel að manni, orðskár nokkuð, einkurn við vín. Þeir Hermann urðu einu sinni samferða á gufubátnum Oddi af Suðurnesjum austur á Eyrarbakka. Hjörlcifur veittist þá að Hermanni, sverti hann með ómildum orðum um nurl og svíðingshátt. Taldi hann nokkur dæmi fram. Var þetta eitt þeirra: „Þú, helvítið þitt. Þú tímir ekki að sofa á fiðurkodda, þú sefur á hroðakodda“. Þannig lét hann dæluna ganga, unz Hermann þoldi ekki mátið. Hann vatt sér leifturskjótt að Hjörleifi, hafði á honum endaskipti, sveiflaði efri hlutanum út fyrir borðstokkinn, en hélt föstu taki um fætur. Goðasteinn 63

x

Goðasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.